«

»

Er einhver hissa ?

Er einhver hissa ,þegar bankastjóri Landsbankans segir, að  ef til vill verði  nauðsynlegt að taka upp ensku   í daglegum störfum í  bankanum ?  Ekki ég. Samskipti  við útlönd  eru svo  ríkur þáttur í starfsemi íslenskra fjármálastofnana, að hluti  starfsmanna talar allan daginn jöfnum höndum  ensku og íslensku, því ekki tala erlendir  bankamenn íslensku, – enn sem komið er !

Er  ekki líka  svo  komið, að háskólar á  Íslandi kenna  sumir hverjir    hluta námsefnis á ensku?

Það er  svo komið að  menn eru ekki lengur   gjaldgengir á  vinnumarkaði ,nema vera  vel að sér í ensku. Maður þarf  meira segja að kunna ensku   til að  geta tjáð sig  við  afgreiðslufólk í stórverslunum  eins og Hagkaupum og Bónusi. Lenti síðast í því í  fyrrdag og  lenti líka í því að túlka fyrir  fullorðinn mann sem  var næstur á undan mér og ekki sleipur í enskunni.Það skilja nefnilega ekki allir  ensku.Þetta er  hinn  harði veruleiki.En það er heilög skylda okkar að vernda móðurmálið. Þar standa   fjölmiðlar og  fjölmiðlungar sig illa. Stjórnmálamenn  sletta ensku. “ Jæja , whatever..” sagði   víttlesinn bloggari og  forystumaður  vinstri grænna í  Silfri Egils. Í útvarpinu í morgun var  verið að  fjalla um bókmenntir og tekið svo  til orða “..rithöfundar sem  skipa  svokallaðan short list eða stuttlista”. Óþörf sletta.Dæmin eru  óteljandi, – því miður.Þetta var á  bloggi Mogga í morgun.Well folks, time for a lil´update“Anywho…pabbi gamli og”..(Anywho er  reyndar áður óþekkt nýyrði í ensku, sennilega     ætlaði hann að skrifa    Anyhow) Oft sletta þeir mest ,sem minnst kunna. “Ég var svo að fá mér nýja græju í gær…24″ widescreen tölvuskjá (Gateway FPD2485W). Þvílíkur munur, 1920*1200 upplausn og allez. Styður 1080p Hi-Def svo hann dobblar sem fullkominn skjár fyrir X-boxið líka og svo verður maður auðvitað að fá sér Blu-Ray spilara innan skamms. Svona lítur desktoppurinn út hjá mér núna. ..”Þetta er auðvitað málsóðaskapur með ólíkindum.Við eigum að  kunna íslensku og stuðla að því að vegur tungunnar verði sem mestur. Við þurfum að kunna ensku, en við eigum að halda málunum  aðskildum.Það er mergur málsins, en reynist mörgum  erfitt. 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>