Illa gengur að losna við amböguna síðasta sumar. Í hádegisfréttum RÚV (íþróttafréttum 14.01.2010) Var talað um síðasta sumar , þegar samkvæmt íslenskri málvenju hefði átt að segja: … í fyrra sumar.
Enn heldur fréttamaður RÚV áfram að kalla Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg stjórnarráðið. Getur ekki málfarsráðunautur RÚV skýrt það út fyrir manninnum að stjórnarráðið er samheiti yfir öll ráðuneytin, en hvíta húsið við Lækjartorg ,sem hýsir forsætisráðuneytið, er og hefur verið kallað Stjórnarráðshúsið ? Þetta er tiltölulega einfalt og auðskilið.
Í ágætri grein í DV (13.01.2010) segir:… að ábyrgðarleysið sé ekki eini fylgifiskur prófkjaranna. Þegar orðið kjör er notað í merkingunni val eða kosning þá er eignarfall fleirtölu kjöra, með greini kjöranna. Þessvegna hefði hér átt að tala um fylgifisk prófkjöranna. En þegar orðið kjör er notað í merkingunni hagur eða laun þá er eignarfall fleirtölu kjara, kjaranna með ákv. greini. Ókeypis húsnæði er hluti kjaranna.
Í mbl.is (13.01.2010) er talað um: …að leita uppi tvo af föngum búðanna, … Það er út í hött að einhverjir hafi verið fangar búða. Verið var að leita uppi tvo menn úr fangabúðum, þar sem mennirnir höfðu verið fangar Bandaríkjamanna. Sami miðill fjallaði um kuldakast í Flórída og var tekið þannig til orða: …. og hefur frosið þar að næturlagi. Eðlilegra hefði verið að segja til dæmis ,að þar hafi verið frost undanfarnar nætur eða að þar hafi verið næturfrost.
Í leiðara Fréttablaðsins (13.01.2010) er ágæt umfjöllun um fúkyrðaflauminn og níðið á netinu sem oftast er sett fram í skjóli nafnleyndar. En fúkyrðaflaumur og níð takmarkast ekki við netið. Það er einnig að finna á öðrum miðlum og kemst þar enginn með tærnar þar sem Útvarp Saga er með hælana. Þar þarf ekki lengi að hlusta á umfjöllun um IceSave (Stöðin fjallar eiginlega ekki um annað) til þess að heyra talað um landráð og að þingmenn og ráðherrar séu kallaðir idjótar og þaðan af verra. Verstir eru þættir útvarpsstjórans og meðreiðarsveins hennar. Þátturinn sem þau kalla Línan er laus, ætti kannski fremur að heita Skrúfan er laus.
Skildu eftir svar