Í ágætum morgunþætti Rásar eitt Víðu og breiðu (17.03.2010) var sagt, að á vef RÚV væri frétt um, að hugsanlega yrði nýtt afvopnunarsamkomulag Bandaríkjamanna og Rússa undirritað í Reykjavík. Nánar yrði líklega fjallað um málið í áttafréttum. Ekki var orð um málið í áttafréttum. Þegar vefur RÚV var skoðaður var fréttin vissulega þar. Undir fréttaflokknum Neytendamál ! Það er sjálfsagt rétt, að afvopnunarmál séu neytendamál, en svolítið er þetta nú skondið. Stundum veit vinstri hönd RÚV ekkert um hvað sú hægri gerir.
Í tíufréttum RÚV (14.03.2010) var sagt frá ósannri frétt sem sjónvarpsstöð í Georgíu hafði flutt. Fréttin var kölluð uppspunafrétt. Það var vel að orði komist. Fréttin var vel skrifuð og vel flutt.
Verslunin Ylva á Korputorgi, sem gárungarnir kalla Krepputorg, lýgur í auglýsingu, sem nú dynur í eyrum hlustenda. Verslunin segist afnema virðisaukaskatt af öllum vörum um helgina. Verslunin getur ekki afnumið virðisaukaskatt af einu né neinu. Skatturinn er lögbundinn. Verslunin getur hinsvegar veitt afslátt, sem nemur virðisaukaskattsprósentunni. Það er allt annað mál. Þetta orðalag í auglýsingum er hinsvegar ekki einsdæmi og hefur stundum verið nefnt hér áður.
Unglingar hafa, og hafa líklega alltaf haft sitt eigið málfar. Það er voða kúl að vera tanaður, sagði ungur piltur í fréttum Stöðvar tvö(14.03.2010). Verið var að ræða við unglinga um notkun ljósabekkja, brúnkubekkja.
Úr íþróttafréttum RÚV (14.03.2010): Síðari hálfleikur var aðeins hálfrar mínútu gamall, þegar…! Aðeins var liðin hálf mínúta af síðari hálfleik, þegar…Og : …verða viðurkenndari en áður var… ! Njóta aukinnar viðkenningar.
Dagskrárkynnir , þula, RÚV Sjónvarps sagði (14.03.2010): Svo verður Silfur Egils í endursýningu klukkan… Þátturinn verður ekkert í endursýningu. Hann verður endursýndur klukkan….
Þegar Molaskrifari sat á Alþingi 1978 til 1993 tíðkaðist ekki að segja frá þingmálum áður en málin voru formlega flutt á Alþingi , það er að segja þingskjal prentað og dreift til þingmanna. Nú er þetta breytt. Nú flytja þingmenn málin fyrst í fjölmiðlum og svo á Alþingi. Að vísu man Molaskrifari eina undantekningu frá þessu í sinni þingtíð. Þá hafði þingflokkur Alþýðuflokksins lagt inn þingsályktunartillögu til skjalavarðar. Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins, hafði spurnir af þessu og hafði samband við fréttastofu RÚV og sagði fréttamanni, að Alþýðubandalagið ætlaði að flytja tillögu um þetta sama mál. Það var svo fyrsta frétt í kvöldfréttartíma Ríkisútvarpsins. Þingflokksformaður Alþýðubandalagsins þá hét Ólafur Ragnar Grímsson. Ólafur Ragnar gat stundum spilað á fjölmiðlamenn eins og fiðlu, — meðan Róm brann.
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
Kristinn R. Ólafsson skrifar:
18/03/2010 at 10:02 (UTC 0)
Heill og sæll:
Einhvernveginn stríðir það gegn máltilfinningu minni að láta “vítt og breitt” taka beygingu einsog þú gerir í upphafi góðs pistils í dag: Í ágætum morgunþætti Rásar eitt Víðu og breiðu. Er “vítt og breitt” ekki það sem kallast atviksliður? Og væri þetta ekki samskonar og t.d. “statt og stöðugt”. Ef til væri útvarpsþáttur sem héti “Statt og stöðugt” segði maður varla: Ég heyrði þetta í Stöddu og stöðugu. Eða hvað?
Með bestu kveðju frá Madríd