Fín frammistaða hjá Fréttastofu RÚV á Fimmvörðuhálsi og þar í grennd (24.-25. 03.2010).Stórkostlegar myndir. Liggur við að gamall fréttafiðringur taki sig upp. Frammistaða Stöðvar tvö hefur og verið með miklum ágætum, þótt þar sé fréttaliðið langtum fámennara. Kristján Már Unnarsson stendur fyrir sínu. Margra fréttamanna maki.
Formaður þingflokks VG lét sér sæma að sletta ensku í ræðustóli þingsins (25.03.2010) er hún sagði: Það er gott að vera gay á Íslandi. Það er ekki von til þess að almenningur beri virðingu fyrir Alþingi, þegar þingmenn gera það ekki.
Góð fyrirsögn á visir.is (25.03.2010): Dauðadæmdur fékk gálgafrest. Aftöku manns, sem dæmdur hafði verið til dauða var frestað.
Glöggur lesandi benti Molaskrifara á eindálk í Morgunblaðinu laugardaginn 20. 03.2010 undir fyrirsögninni: Kemur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn til bjargar? Verið var að fjalla um efnahagskreppuna í Grikklandi. Í þessum stutta texta eru málvillur/prentvillur með ólíkindum margar. Dæmi: Í þessu samhengi verður að hafa í huga að vextir á neyðarlánum til grískra stjórnvalda myndi aðeins bera 3.25% vexti… Eins og Papandreou hefur bent á í sjálfur þá standa stjórnvöld nú yfir aðhaldsaðgerðum… Það sem Grikkjunum vantar því eru lánin….. mögulegt getuleysi ESB og evrusvæðisins við að leysa úr skuldavanda gríska ríkisins grafa enn frekar undir trúverðugleika myntsamstarfsisn… þó svo að hann sé í flestum tilfellum að ólíkri stærðargráðu.. en hinsvegar mundi sú lausn að öllu óbreytt… Halló Moggi. Hvað er að? Eitthvað mikið greinilega. Hvar eru síurnar?Þetta er ekki boðlegt.
Í fréttum Stöðvar tvö (22.03.2010) var sagt að Alþingi hefði sett lögbann á verkfall flugvirkja. Sama sagði Kastljósskona, þegar hún kynnti efni Kastljóss í kvöldfréttum RÚV sjónvarps. Alþingi samþykkti lög þar sem kjarasamningur flugvirkja var framlengdur og verkfall þeirra þar með gert ólöglegt eða bannað, ef menn vilja orða það svo. Lögbann er hinsvegar allt annað og það ættu fréttamenn að vita. Í Íslenskri orðabók segir um lögbann á bls. 945: Bann sem gerðarbeiðandi fær yfirvald til að leggja á byrjaða eða yfirvofandi athöfn,sem hann telur að muni raska rétti sínum. Setning laga og lögbann er tvennt óskylt. Ritstjóri Kastljóss þarf greinilega að lesa yfir textann, sem sumir fara með á skjánum.
Fallegt orð jarðeldur en í því getur falist ógn og eyðing. Góðar fyrirsagnir (22.03.2010) í Morgunblaði , Jarðeldar milli jökla og Fréttablaði, Jarðeldur milli jökla. Þótt aðeins sé blæbrigðamunur á, finnst Molaskrifara eintölumyndin fallegri.
Í morgunfréttum og morgunþáttum RÚV (22.03.2010) var sagt frá eldgosinu í Fimmvörðuhálsi. Bæði þar og á vef RÚV var talað um bólstra. Á vef RÚV segir: Eldgosið í Fimmvörðuhálsi er að breytast, bólstri reis upp frá sprungunni, klukkan stundarfjórðung yfir sjö og bólstrinn nær í um fjögurra kílómetra hæð. Sama var uppi á teningnum í dv.is. Þar sagði: Stór og mikill bólstri reis upp frá sprungunni á Fimmvörðuhálsi í morgun sem náði í um fjögurra kílómetra hæð. Ekki hefur Molaskrifara tekist að finna orðið bólstri í tiltækum orðabókum og ekki finnst það í beygingalýsingu íslensks máls.
Stundum má heyra íþróttafréttamenn tala um að taka þátt á móti. (RÚV sjónvarp 22.03.2010). Menn taka þátt í móti ,ekki á móti. Íþróttafréttamenn eru Molaskrifara óþrjótandi uppspretta athugasemda.
Skildu eftir svar