«

»

Ræðutími og „ofbeldi“

Í  umræðunni um ræðutíma á Alþingi minnist ég þess ekki, að hafa heyrt að skipta  beri ræðutíma eftir  þingstyrk flokka. Sá  háttur hefur ,að ég  best veit   all lengi verið viðhafður á í Stórþinginu í Noregi. Þar koma   þingflokkar sér  saman um að  umræða um tiltekið  stórmál skuli standa   , — segjum í  20 klukkustundir  og  fara  fram á  þremur  dögum.  Flokkarnir  fá  síðan úthlutað  ræðutíma eftir  þingstyrk þannig að  flokkur sem  hefur  20% fylgi  fær  fjórar klukkustundir og  svo framvegis. Þetta gerðu Norðmenn , muni ég rétt, í umræðum um EES  samninginn.

Hér  þvældist  stjórnarandstaðan,  einkum Alþýðubandalagið,  fyrir  eðlilegri  afgreiðslu EES samningsins  vikum saman. Nú  eru nánast allir  á einu máli um ágæti EES  samningsins og það góða sem  af honum hefur leitt.

Erfitt er að  skilja  tal um ofbeldi í  umræðum um  breytingar á þingskapalögum   (sem svo sannarlega  þarf að breyta) þegar vilji  54 þingmanna stendur til breytinga en 9  eru á móti.  Það er  ofvaxið mínum skilningi  að hægt sé að kalla  slíkt  ofbeldi. Orð missa merkingu, þegar þau eru notuð með þessum hætti, – misnotuð ætti kannski frekar að segja.

Þau virðast seinlærð hin gömlu sannindi, að það er ekki hve lengi menn tala, heldur hvað menn segja  sem skiptir máli.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>