Í Molum var stundum vikið að fáránlegum auglýsingum Sparisjóðsins Byrs um það sem sparisjóðurinn kallaði fjárhagslega heilsu. Nú er komið í ljós, að Sparisjóðurinn Byr var helsjúkur og er búinn að geispa golunni. Það er gjörsamlega út í hött ef nota á fé skattgreiðenda til að bjarga þeim sem settu Byr á hausinn. Þar er Molaskrifari hjartanlega sammála Jónasi Kristjánssyni.
Leikarar og starfsmenn Borgarleikhússins lásu bankahrunsskýrsluna frá upphafi til enda. Heiður sé þeim. Þeir sögðu að oft hefði verið erfitt að fela geðshræringu , þegar lesnir voru svakalegustu kaflar skýrslunnar. Þetta er auðvelt að skilja, þegar skýrslan er lesin. Þetta leiðir hugann , að því, að fréttaþulir RÚV láta sumir hverjir óhikað skoðanir sínar i ljós á efni frétta með raddbrigðum og áherslum í fréttalestri. Þetta er ótækt því hlustendum koma skoðanir fréttamanna ekkert við. Til dæmis hvort tölur sem þeir lesa séu óhæfilega háar eða lágar. Þetta þurfa fréttaþulir að lagfæra.
Úr fréttum Stöðvar tvö (21.04.2010) …stóðu yfirvöld ekki við orðin tóm, sagði fréttamaður. Enn eitt dæmið um að fjölmiðlafólk notar orðatiltæki,sem það kann ekki með að fara. Að láta ekki sitja við orðin tóm, þýðir að láta framkvæmd fylgja orðum (Mergur málsins, Jón G. Friðjónsson, bls. 892)
Úr fréttum Stöðvar tvö ( 21.04.2010): .. að fólk á svæðinu verði rétt hjálparhönd. Leitt er til þess að vita að þekking á grundvallaratriðum íslenskunnar skuli ekki vera fyrir hendi á fjölmennum fréttastofum.
Fyrirsögn í Morgunblaðinu (23.04.2010): Verð á dekkjaskiptum hefur hækkað lítið. Eðlilegri orðaröð væri: Verð á dekkjaskiptum hefur lítið hækkað.
Úr mbl is (21.04.2010): Kvikuflæði í eldgosinu í Eyjafjallajökli er nú stærðargráðu minna en það var fyrstu 72 klukkustundirnar, að mati vísindamanna… Hverju erum við nær ? Hvaða stærðargráðu er verið að tala um?
Málvenja er að segja í Vík í Mýrdal. Það gerði fréttaþulur líka í fjögurfréttum RÚV (21.04.2010). En í sama fréttatíma sagði fréttamaður á Vík í Mýrdal. Fréttastofan ætti að hafa við hendina lista forsetninga með nöfnum íslenskra þéttbýlisstaða og örnefna.
Fréttaþulur ( 20.04.2010) Ríkissjónvarpsins las í seinni fréttum: Drunurnar út frá eldgosinu heyrðust … Auðvitað átti að segja: Drunurnar frá eldgosinu heyrðust…
Skildu eftir svar