Mögnuð nánd við Gígjökul var góð fyrir sögn í Mogga (5.05.2010). Vond fyrirsögn á aðsendri grein í sama tölublaði var hinsvegar: Það er er mikill munur á sannleika og lygi. Þarf að segja fólki það í fyrirsögn?
Í seinni fréttum Ríkissjónvarps (05.05.2010) var sagt: .. þingið mun kjósa um tillöguna á föstudag. Verið var að ræða um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu á þýska sambandsþinginu. Þing kjósa ekki um tillögur. Á þingum eru greidd atkvæði um tillögur.
Stórfyrirtækið Hagkaup gerir enn eina atlögu að íslenskru tungu í opnu auglýsingu í Fréttablaðinu (06.05.2010) þar sem á tveimur stöðum stendur með flennistóru letri RISA TAX FREE DAGAR. Þetta er þeim Hagkaupsmönnum til skammar.
Misskildi Molaskrifari þingmanninn Guðlaug Þór í Kastljósi ? Fjölmiðlar segja, að hann ætli að birta nöfn þeirra sem styrktu hann og vildu ekki að nöfn þeira væru birt. Molaskrifari skildi þingmanninn svo, að hann ætlaði að birta nöfnin, ef þeir sem styrkina veittu leyfðu að nöfn þeirra væru birt. Á þessu er reginmunur.
Það kemur æ betur í ljós hve miklu tjóni ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar í BBC og fleiri erlendum fjölmiðlum hafa valdið þjóðinni. Það er ekki sama hver talar. Forsetinn á ekki að tjá sig við erlenda miðla um mál,sem hann veit ekkert um. Orð vísindamanns hefðu ekki haft sömu áhrif. Hvað ef Elísabet Bretadrotnning hefði komið með viðlíka yfirlýsingu, að breyttu beytanda í BBC, – er þó ekki verið að líkja Ólafi við Elísabetu. Vandinn er sá,að margir útlendingar halda að Íslendingar séu með alvöru forseta. Það er ekki alvöru forseti,sem lýst er í sðferðishluita skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Það er líka alvörumál þegar forsetahjónin rífast í viðurvist erlendra fjölmiðlamanna, ummæli forsetans í erlendum fjölmiðlum eru nær ævinlega rangt eftir honum höfð, slitin úr samhengi eða á misskilningi byggð. Þetta segja stjórnmálarefir alltaf, þegar þeir hafa talað af sér.
Fréttaþulur Ríkissjónvarps bað hlustendur afsökunar á rúmlega tuttugu mínútna seinkun seinni frétta (04.05.2020). Seinkunin var auðvitað vegna íþrótta. Íþróttir ganga fyrir fyrir öllu í Efstaleitinu. Og íþróttum var svo sannarlega gert hátt undir höfði þetta kvöld. Óskiljanlegt rugl varð hinsvegar í útsendingu Rásar eitt eftir miðnætti þetta kvöld. Að loknum fréttum á miðnætti voru að venju á dagskrá Næturtónar. En þá segir þulur venjulega um leið hann kynnir fyrsta sílgilda tónverkið að síðan verði leikin verk eftir Bach , Beethoven, Mozart , Haydn og nefnir fleiri helstu tónskáld sögunnar. Og hlustendur eru svo sem engu nær.
Þetta kvöld kom löng þögn að lokinni þularkynningu. Svo heyrði Molaskrifa lokin á einhverju þar sem ung kona bað guð um að gefa fólki góðan dag. Það var ósköp fallegt fyrir svefninn. Nokkuð löngu síðar var þularkynningin frá miðnætti endurtekin en þögn fylgdi í kjölfarið. Loks var eftir langa mæðu líklega undir hálf eitt byrjað að útvarpa útsendingu Rásar tvö. Molaskrifari beið eftir fréttum klukkan eitt. Þá voru fréttrinar frá miðnætti endurteknar óbreyttar að ég best heyrði. Engin skýring. Engin afsökun. Var bilun í tæknibúnaði? Hvað var á seyði í Efstaleitinu ? Aftur voru Næturtónar í auglýstri dagskrá miðvikudagsins. Þeir skiluðu sér ekki í viðtæki Molaskrifara. Heldur var þar útsendinga Rásar tvö.
Það er svo kafli útaf fyrir sig að útvarpið skuli leyfa sér að flytja sígilda tónlist alla nóttina án þess að kynna verkin. Það er lítilsvirðing við listina. Ef þetta snýst um sparnað mætti alveg sleppa eins og einum íþróttaleik í mánuði, og jafnvel tveimur ,ef með þarf.
Skildu eftir svar