Í íþróttafréttum Stöðvar tvö (03.06.2010) var sagt um mann, að hann yrði ávallt í minningum stuðningsmanna Liverpool. Ankannalega að orði komist um það, að maðurinn verði stuðningsmönnum Liverpool eftirminnilegur. Í íþróttafréttum Stöðvar kvöldið eftir sagði fréttamaður: Stjarnan sigraði leikinn.
Mistur af þessu tagi verða líklega viðvarandi vandamál í allt sumar, sagði fréttaþulur í fréttayfirliti Stöðvar tvö (04.06.2010). Mistur er eintöluorð. Það er ekki til í fleirtölu.
Þrátt fyrir skort á skyggni, sagði fréttaþulur Stöðvar tvö (04.06.2010). Hefði betur sagt þrátt fyrir lélegt eða slæmt skyggni.
Molaskrifari hefur ekkert á móti því að sjá fallega skoruð mörk, en knattspyrnudekur Ríkissjónvarpsins er löngu komið úr öllu hófi. Allar fréttirnar af þjálfurum og knattspyrnustjórum bera vott um hinn lokaða og sjálfhverfa heim íþróttafréttamanna. Engin fréttastjórn virðist til staðar, þegar um íþróttafréttir er að ræða. Þar virðist hver fara sínu áfram.
Það var að vanda mikil reisn yfir dagskrá Ríkissjónvarpsins á fimmtudagskvöldið (03.06.2010). Að loknum fréttum og Kastljósi: Amerísk spennuþáttaröð, bresk barnamyndaröð, amerísk sápusería,fréttir, amerísk spennuþáttaröð,endursýndur norskur þáttur. Er ekki annars kominn tími til að endurvekja sjónvarpslausa fimmtudaga, – að minnsta kosti yfir sumarið? Ríkissjónvarpinu virðist algjörlega um megn að senda út boðlega dagskrá þessi kvöld.
Ráðherrar verða að gæta orða sinna. Ef 2% hækkun á greiðslum til sérfræðinga er alvarlegasta vandamálið,sem heilbrigðisráðuneytið glímir nú við, eru erfiðleikarnir á þeim bæ ekki umtalsverðir.
Morgunþáttur Rásar tvö heldur áfram að flytja hlustendum vikulegan slúðurpistil vestan frá Bandaríkjunum. Ef dagskrárstjórum finnst þetta ómissandi efni, ættu þeir að finna sér viðmælanda,sem hefur sæmileg tök á íslenskri tungu.
Skildu eftir svar