Hafin er herferð gegn ölvunarakstri og er það vel. Fjölmiðlar herma að IOGT samtökin standi fyrir herferðinni. IOGT er ensk skammstöfun (International Order of Good Templars) heitis alþjóðlegrar bindindishreyfingar, sem hafði mikil áhrif á Íslandi á sínum tíma en er nú að mestu horfin úr sviðsljósi samtímans líkt og ungmennafélögin. Þessi hreyfing heitir á íslensku Góðtemplarareglan og félagsdeildir hennar hétu stúkur. Vart var sú byggð á Íslandi að þar væri ekki starfandi barnastúka og stúka fullorðinna. Þar var unnið merkilegt starf. Molaskrifari komst svo langt á sínum tíma að verða fyrrverandi æðstitemplar í barnastúkunni Æskunni númer eitt. Aldrei varð hann þó æðstitemplar.
Líklega þykir forsvarsmönnum Góðtemplarareglunnar fínna að slá um sig með skammstöfuninni IOGT heldur en nota hið gamla góða orð Góðtemplarareglan. Það er hallærislegt snobb að forðast hið gamla, góða orð, Góðtemplararegla.
Hypjist nú öll út að fagna (17.06.2010). Svo segir í fyrirsögn í Morgunblaðinu. Molaskrifari hefur ekki vanist því að sögnin að hypja sé notuð með þessum hætti. Henni fylgir í huga skrifara alltaf að hypja sig. Eftir að hafa orðið sér til skammar hypjaði hann sig burt. Hypjaðu þig burt, – snáfaðu burt. Svo er líka talað að hypja upp um sig brækurnar, – hysja upp um sig buxurnar. Beygingarmyndin hypjast fyrirfinnst ekki á vef Árnastofnunar, beygingarlýsingu íslensks nútímamáls.
Heldur var það rýrt í roðinu, sem Ríkissjónvarpið bauð þjóðinni upp á að kveldi þjóðhátíðardagsins. Að loknum endurflutningi á ræðu forsætisráðherra frá því um morguninn var endursýnd íslensk kvikmynd, sem tæplega telst til stórverka, þá amerísk þáttaröð og svo endursýndur þáttur úr norskum myndaflokki. Að ógleymdum fótbolta og aftur fótbolta. Norska sjónvarpið gerði betur við sitt fólk að kveldi þjóðhátíðardags okkar. Það sýndi Mýrina þeirrar Baltasar og Arnaldar, sem er prýðilega gerð spennumynd. Það er ekki við góðu að búast fyrir þjóðina úr Efstaleiti þegar svo stór hluti dagskrárfjár fer í Júróvisjón og boltaleiki. Það þarf að taka dagskrárstjórnina úr höndum íþróttadeildar.
Skildu eftir svar