Í frumvarpi sem Siv Friðleifsdóttir hefur lagt fram á Alþingi er lagt til að tekin verði upp þingsköp af norskri fyrirmynd.(mbl.is 25.06.2010). Hér varð Morgunblaðinu það á að nota ranga forsetningu. Segja ætti … að norskri fyrirmynd ekki af. Þessi tillaga Sivjar er raunar eitt það skynsamlegasta,sem lengi hefur komið fram á Alþingi. Molaskrifari hefur lengi verið á því að þetta ætti að gera, – allar götur síðan hann fylgdist með EES umræðunum í norska Stórþinginu. Þar var umræðutíminn ákveðinn , svo og svo margar klukkustundir sem deildust á tvo eða þrjá daga dagar, man ekki hvort var. Það var gert áður en umræðan hófst. Flokkarnir fengu svo ræðutíma eftir þingstyrk. Hér var EES málið þæft vikum saman á Alþingi. Það var engum til sóma og hafði ekkert með málfrelsi að gera. Þar fóru Alþýðubandalagsmenn fremstir í flokki. Þeir voru yfirleitt á móti útlöndum.
Að morgni dags (25.06.2010) var í Ríkisútvarpinu talað um styrki til handa einstakra þingmanna. Þarna var orðinu handa ofaukið. Réttara hefði verið að tala um styrki til einstakra þingmanna.
Gunnari Lárus Hjálmarssyni var nýverið sagt upp hjá Fréttablaðinu,segir í dv.is (25.06.2010). Þeim sem þetta skrifaði er greinilega ekki ljóst að þágufall mannsnafnsins Lárus er Lárusi, ekki Lárus.
Í skoðanakönnun frá mars, sagði fréttamaður í tíu fréttum Ríkissjónvarps (24.06.2010) og átti líklega við, að í skoðanakönnun sem gerð var í mars….. eða: Í skoðanakönnun frá því í mars.
Kunnur bloggari og fyrrum þingmaður skrifar (25.06.2010): …að svo gæti farið að samningar fjármálastofnana um gengislán yrðu talin ólögmæt. Hér er það orðið samningar,sem skiptir máli. Þess vegna ætti þarna að standa: .. að svo gæti farið að samningar fjármálastofnana um gengislán yrðu taldir ólögmætir. Ótrúlega algeng villa. Líklega oftar fljótfærni, fremur en vankunnátta.
Það er að mati Molaskrifara meira en lítið brenglað fréttamat, þegar myndatökulið er sent á vettvang, þegar tuttugu manna hópur fer niður á Austurvöll til að afhenda forseta Alþingis undirskriftir 700 einstaklinga. Það er engin frétt þótt gamlir róttæklingar byrsti sig, ef fólk þeim nákomið þarf að bera ábyrgð á gerðum sínum. Það er sömuleiðis fáránlegt ,að fjölmiðlar skuli kokgleypa fréttatilkynningu frá einhverjum sem kalla sig Samtök lánþega, þar sem hvatt er til áhlaups á alla banka og fjármálastofnanir á Íslandi. Hversvegna kannar enginn fjölmiðill hvaða samtök þetta eru , hve fjölmenn og svo framvegis ? Það er svívirðilegt ábyrgðarleysi að hvetja til áhlaups á banka og enn verra þegar fjölmiðlar fjalla algjörlega gagnrýnilaust um slíkt.
Skildu eftir svar