AÐILAR ENN OG AFTUR Aðilar komu mjög við sögu í lögreglufréttum Bylgjunnar á hádegi á laugardag (08.10.2016), – aldrei þessu vant. Ellefu aðilar voru á staðnum , – aðili féll í götuna. Er þessu fréttaskrifurum ekki sjálfrátt? Hallast eiginlega að því. RÖKRÉTT HUGSUN Skólabróðir, sem er áhugamaður um velferð móðurmálsins, og Molaskrifari hafa verið …
Monthly Archive: október 2016
Molar um málfar og miðla 2031
BROTTVÍSUN Það kemur fyrir að reyndir þulir og fréttamenn lesi málvillur í fréttum án þess að hika, – hvað þá leiðrétta. Í átta fréttum Ríkisútvarps á föstudagsmorgni (07.10.2016) las fréttamaður: Hælisleitenda sem vísað var úr landi og sendur til Noregs á miðvikudag var sendur hingað aftur samdægurs. Þetta hefur Fréttablaðið eftir …. Þetta hefði átt …
Molar um málfar og miðla 2030
2030-16 FLOGIÐ Í GEGNUM EVRÓPU Sérkennilegt orðalag í frétt á mbl.is (05.10.2016): Fjögur Evrópuríki sendu herþotur til móts við rússnesku Blackjack-herflugvélarnar sem flugu í gegnum Evrópu til Spánar og til baka í lok síðasta mánaðar. Það hlýtur að hafa verið mikill skellur, eða hvað? http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/10/05/flugu_herthotum_i_veg_fyrir_russa/ AFHENDING VETTVANGS Annað dæmi um undarlegt orðalag í frétt …
Molar um málfar og miðla 2029
GRÓUSÖGUR Fríða Björnsdóttir fyrrverandi blaðamaður skrifaði Molum (05.10.2016): ,,Sælir Eiður, þar sem máltilfinning mín er að hverfa langar mig að spyrja þig um eitt. Í gærkvöldi var rætt við forstöðumann Útlendingastofnunar um allan þann fjölda hælisleitenda sem hingað streymir frá Balkanskaganum. Sagði hún þá að það stafaði líklega af Gróusögum sem gengju þar um ágæti …
Molar um málfar og miðla 2028
AÐ BERA AÐ GARÐI Að bera að garði. Einhvern bar að garði, – það kom einhver, það kom gestur. Þorvaldur skrifaði (03.10.2016): ,,Sæll enn Eiður. Í fréttum sjónvarps áðan var sagt frá því að eftirvænting skólabarna á Patreksfirði hafi verið mikil þegar forsetahjónin „báru að garði„. Ekki fylgdi sögunni hver byrði hjónanna var.” Þakka …
Molar um málfar og miðla 2027
AÐ ÞRESKJAST Í þættinum Samfélaginu á Rás eitt var prýðilegur pistill um matarsóun og áhrif hennar á loftslagsbreytingar (29.09.2016). Þar var meðal annars fjallað um banana,sem við flytjum inn, vistspor þeirra allt frá því regnskógur er ruddur og víkur fyrir bananaplantekru þar til þeir koma til okkar. Höfundur pistilsins sagði um bananana, sem eru dökkgrænir, …
Molar um málfar og miðla 2026
KJÓSA – GREIÐA ATKVÆÐI Bæði í átta fréttum Ríkisútvarps og á fréttavef Ríkisútvarpsins (29.09.2016) var talað og skrifað um að Bandaríkjaþing hefði kosið gegn lagafrumvarpi Obama forseta: Bandaríkjaþing kaus í gær gegn neitun Baracks Obama um að fjölskyldur fórnarlamba hryðjuverkanna 11. september geti höfðað mál gegn sádí-arabískum embættismönnum. http://www.ruv.is/frett/thingid-visadi-neitun-obama-a-bug Á þjóðþingum er ekki kosið …