«

»

Molar um málfar og miðla 595

 

Ljómandi góður Tungutakspistill  eftir Svanhildi Kr. Sverrisdóttur er í nýjasta Sunnudagsmogga.  Þar  fjallar Svanhildur  meðan annars um  hvenær  skuli skrifa eitt orð  og hvenær tvö  allskyns, hverskyns.. Einnig víkur hún að  því   þegar rithætti einstakra orða  er  breytt , Furðu strandir , ekki Furðustrandir.   Loks nefnir hún hið hvimleiða  , — að eiga góða helgi .  Það  orðalag hefur   lengi verið  Molaskrifar þyrnir í augum. Góða helgi,  eða  njótið helgarinnar.

 Í þessum sama    Sunnudagsmogga er  heilsíðu  auglýsing  um   tvær  nýjar bækur  um heilsu og  hollt mataræði.   Bækurnar eru taldar  þeim nauðsynlegar sem vilja viðhalda  góðri heilsu og æskufjöri  Aðeins aftar í blaðinu er  næstum  þriggja blaðsíðna  myndskreytt við  höfund þessara tveggja bóka .   Svona  vinnubrögð  hefðu    hér  fyrir nokkrum  árum   ekki verið talin  vöndu blaðamennska á Mogga.

Á  frétttum Stöðvar tvö  var  talað um  verkalýðshreyfingarnar á Íslandi. Molaskrifari er  á því að tala   eigi um verkalýðshreyfinguna á Íslandi  í  eintölu. Hinsvegar mætti  tala  verkalýðshreyfingarnar í  Evrópu. Er þetta sérviska ?

Við, sem munum verkföllin á  fimmta og sjötta áratug síðustu aldar,  erum þess minnug  að verkföll eins og þá  tíðkuðust jöðruðu við  villimennsku. Mjólk var hellt niður  við Geitháls og Smálönd (sem enginn man lengur  hvar voru !) . Kaffi var að sögn  ,,smyglað”   til Reykjavíkur í líkkistum  undir íslenskum fána bensín var geymt í ílátum við  eldhúsdyrnar  og   fleira var eftir því. Eftir langt verkfall  setti Emil Jónsson  fram hugmyndina um atvinnuleysistryggingasjóð, sem varð hluti af lausn málsins. Í seinni deilum settust menn niður m.a.  fyrir  tilstilli Bjarna Benediktssonar, Eðvarðs Sigurðssonar  Guðmundar J. og  Gylfa Þ. Gíslasonar og fleiri góðra manna og  töluðu saman eins og  siðaðir menn. Svo varð  til orðið þjóðarsátt. Nú  eru Samtök kvótagreifanna, LÍÚ,  og  Samtök  atvinnulífsins að  taka upp  hina gömlu villimennsku. Rjúfa forna sátt. Þau  vilja   stöðvun  þjóðlífsins. Hafa tekið launafólk landsins í gíslingu  fyrir hagsmunni hinna fáu og ríku.  Með hörmulegum afleiðingum fyrir alla.  Það tapa allir á allsherjarverkföllum  Mest  launþegar og svo   atvinnulífið.  

Eina  svarið er þjóðaratkvæðagreiðsla um skiptingu arðsins af  auðlind þjóðarinnar  , fiskistofnunum við landið. SA og LÍÚ verða  að gera upp við sig hve mikið þau vilja borga,. Þau verða að borga. Þjóðin á fiskistofnana. Ekkert fær því breytt.   Ekki  fáeinir sægreifar og enn færri liðsoddar þeirra. Um það snýst málið.

 Við skulum hafa þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrst. Moggi  vildi þjóðaratvæðagreiðslu um  Icesave. Hann hlýtur að styðja þjóðaratkvæðagreiðslu um  kvótann.

6 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Gísli Hvanndal skrifar:

    Furðustrandir, Sunnudagsmoggi og heilsíðuauglýsing (sem eitt orð), myndi ég ætla. Í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls, Stafsetningarorðabókinni og Íslenskri orðabók má finna orðið ‘heilsíða’ sem fyrri lið samsetts orðs.

  2. Eiður skrifar:

    Þakka þér þetta, Þorgrímur. Ég man atvinnuleysi á fimmta áratugnum, þegar faðir minn ekki hafði vinnu. Kannski misminnir mig um verkföll á þeim áratug. Þaðð má vera. Barnsminnið getur verið brigðult. Það voru að vísu oft ekki margir dagar í senn, sem hann var án vinnu, en nóg til að valda áhyggjum.

  3. Þorgrímur Gestsson skrifar:

    Sæll og hafðu þakkir fyrir marga góða pistla. En ég stenst ekki mátið að gera þá athugasemd nú að ég efast um að þú munir verkföll á fimmta áratugnum enda voru þau víst ekki mörg enda næg vinna og mikill stríðsgróði á þeim árum. Á sjötta árastugnum var hins vegar verkfall sem leystist með því að lofað var að koma á atvinnuleysistryggingum. Það var hins vegar ekki Emil Jónsson sem lagði fram þá hugmynd. Hann dró hins vegar fram frumvarp til laga um atvinnuleysistrygging og stakk upp á að samþykkt þess yrði látin liðka fsyrir lausn þessarar hörðu deilu. En sannleikurinn er að þetta frumvar eða önnur álíka höfðu báðir vinstri flokkarnir, hvor í sínu lagi og saman, lagt fram ein 15 þing eftir 1936, þegar alþýðutryggingalögin voru samþykkt með gagnslausu ákvæði um atvinnuleysistryggingar. En þessi frumvörp náðu aldrei lengra en í gegnum eina umræðu, sem stundum var raunar engin, og var vísað til nefndar þar sem málið sofnaði. Þar til Emil mundi eftir því á réttum tíma.

  4. Kristinn V. Jóhannsson skrifar:

    Ég hélt að þú gætir komið skoðunum þínum á framfæri án þess að uppnefna fólk sægreifa eða kvótagreifa. Geturðu ekki bara talið upp fyrir mig hverjir þessir „fáeinu sægreifar“ eru? Útgerðarmenn eru upp til hópa harðduglegt fólk, sem vinnur þjóðinni meira gagn en bæði ég og þú. Kannski þú getir líka sagt mér hvað ætti að spyrja um í þjóðaratkvæðagreiðslu. Og svo er það þetta með þjóðina. Hvað eða hver er þjóðin?
    Svo þakka ég góðan málfarsþátt.
    Kristinn

  5. Jón M. Ívarsson skrifar:

    Frábær pistill. Tek undir hvert orð. Mæli samt með að þú gefir þér tíma til að lesa yfir áður en þú sendir þetta frá þér. Í tvö orð vantar síðasta stafinn, (Molaskrifara, vönduð) í einu orði er einum staf ofaukið (fréttum) og svo vantar orðið viðtal.
    En- efnið er gott, haltu áfram.

  6. Þorkell Guðbrandsson skrifar:

    „Dýrara en aldrei fyrr að leigja þorskkvóta“

    Fyrirsögn á vefmiðli sem kallast Tíminn.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>