«

»

Molar um málfar og miðla 603

Bjarni Sigtryggsson hugsar oft til Mola um málfar og miðla. Hann sendi eftirfarandi:“Persónulegar upplýsingar Facebook-notenda gætu hafa verið lekið út til þriðja aðila…“ Svona hefst frétt á dv.is í dag (11.05.2011)  og lýkur á þessari stórfurðulegu málsgrein:“Facebook hafa núna séð til þess að gallinn sé ekki lengur fyrir hendi en samkvæmt talsmanni Facebook eru engar sannanir um að einhver hafi notfært sér umræddan öryggisgalla. Talsmaðurinn segir einnig að skýrsla Symantec sé ekki alveg rétt og líti til að mynda fram hjá því að samkvæmt samningi facebook við auglýsendur og þróunaraðila forrita þá sé þeim bannað að ná í eða deila upplýsingum sem á hátt sem fer gegn reglum síðunnar.“

Svo bætir Bjarni  við:

Ritstjórar DV eiga verk fyrir höndum að kenna blaðamönnum að lesa texta sinn yfir áður en hann er birtur, og leita hjálpar ef þörf krefur.

Í  sexfréttum Ríkisútvarpsins (11.05.2011) var sagt: …. þarf skólinn að uppfylla ítarlega reglugerð. Svona  er ekki hægt að taka til orða að mati   Molaskrifara. Betra hefði verið: Þarf  skólinn  að  fullnægja  skilyrðum sem sett eru í ítarlegri reglugerð.

Í kynningu á  dagskrá Ríkisútvarpsins (11.05.2011) var sagt: …. sem hefst á  Rúv klukkan 22 15. Hvar  í  dagskrá Ríkisútvarpsins ? Það  var ekki sagt. Nú er allt  Rúv, Rúv í Efstaleiti. Þessvegna gat  umræddur þáttur verið á  Rás  eitt, Rás tvö  eða í Ríkissjónvarpinu.  Ekki góð vinnubrögð.  Við  athugun kom í ljós, að þetta var einn af svona þúsund  þáttum um boltaleiki og þessvegna var hann  auðvitað í Ríkissjónvarpinu, – á  besta tíma  kvölds.

Áhöfnin á TF Gná, þyrlu landhelgisgæslunnar fékk harla óvenjulegt verkefni í dag,  sagði fréttamaður í kvöldfréttum   Ríkissjónvarps (11.05.2011) að  skima eftir hvítabjörnum á Hornströndum….  Örstuttu seinna  kom í ljós, að verkefnið var  ekki óvenjulegra en svo að þetta er gert á hverju  einasta  vori.  Þetta  var  undarlega  skrifað. Varla getur árlegt verkefni talist harla óvenjulegt.  Þeir sem svona skrifa  eru annarshugar    við skriftirnar, –  að ekki sé nú meira sagt. Molaskrifari hefði ekki notað  orðalagið skima eftir. Heldur sagt: Skimast um eftir.

Blaðamaður á visir.is , sem skrifar um  hljómleikahöllina Hörpu, segir (11.05.2011): Fréttir af húsinu hafi spyrst vel út um víðan völl. Það var og.

Talsmaður Hörpu segir í sömu frétt:  ,,…… við erum bara á Íslandi og fólk mun komast að því að þetta hús er að opna.“ Sama meinlokan og þegar fréttamenn tala um að kjörstaðir opni. Hvað er  húsið  að opna? Það  var verið að opna húsið.

Nú er sífellt talað um  Hörpu  með  ákveðnum greini. Hljómleikar eru haldnir í Hörpunni.  Margir sóttu  tónleika í Hörpunni.  Húsið heitir Harpa, ekki Harpan. Molaskrifari féll reyndar sjálfur í þessa gryfju í stuttri athugasemd á fésbókinni. Þetta er  smitandi fjári.

Molaskrifari heyrði ekki betur  en talað væri um að syngja á kýpversku  í  Evróvisjónlýsingu Ríkisútvarpsins ! Kannski verður þar líka sungið á belgísku? Hver veit ? Og svo  sigra menn keppnina  eins og  þulurinn sagði.

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>