«

»

Ólæsi á DV

 Það er greinilegt að  DV menn, að minnsta kosti  sá  sem skrifar  nafnlaus  Sandkorn ,er  ekki bara treglæs  heldur með öllu ólæs.

Ég skrifaði  hér á  dögunum um kranaviðtal   Jóhanns Haukssonar við Ólaf Ragnar Grímssonar í Mannlífi. Þar segir í  flenni fyrirsögn á  forsíðu  blaðsins, þvert yfir mynd af Ólafi Ragnari :  Forsetanum  hótað.  Ég sagði,  að í viðtalinu kæmi ekki fram að Ólafi Ragnari hefði verið  hótað , né hverjir  hefðu  hótað  hverju. Sú  fullyrðing  stendur  óhögguð.

Í viðtalinu  segir :,,Stundum hefur gætt tilhneigingar af hálfu ráðamanna, í þessari ríflega 60 ára sögu lýðveldisins, til að setja forsetanum skorður, jafnvel beita hótunum þannig að hann ætti erfitt með að uppfylla þær skyldur gagnvart þjóðinni sem honum ber …“.

Ef menn lesa það út úr þessum línum,að Ólafi  Ragnari hafi  verið hótað, þá  eru þeir   ekki treglæsir , heldur ólæsir.  Þarna segir bara ,að  á  sextíu  ára  tímabili hafi gætt  tilhneigingar  til að setja  skorður, jafnvel beita  hótunum.  Þessum orðum er  ekki fundinn neinn staður. Það segir  hreint ekki að Ólafi Ragnari  hafi verið  hótað. Það er ómögulegt að lesa það út úr þessu. Þessvegna   er  fyrirsögnin á  forsíðunni,  Forsetanum hótað,  röng og til þess fallin að blekkja lesendur. Þegar þessi  fyrirsögn er sett  þvert  yfir  mynd af ÓRG  dylst engum , að það er verið að segja  að Ólafi Ragnari hafi verið hótað. Það kemur  ekki fram í  viðtalinu.

  Það er    misskilningur hjá DV, að  sá sem þetta  skrifar hafi óbeit á  forsetanum.  Svo er   ekki.  Mér finnst  bara að hann  eigi að segja þjóðinni satt og hef  gert  athugasemdir, þegar hann  víkur af vegi  sannleikans.

 Vitað var að ýmsir  sem  skrifa fréttir á     vefdv  eru ekki mjög  vel  skrifandi, en að þar séu  menn líka ólæsir, kemur  svolítið á óvart.

En þetta er  það sem   vefdv   skrifaði  og  svo  geta lsendur  dælmt um hver  er  treglæs og hver  er ólæs:

Treglæs sendiherra

Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, fer á bloggi sínu nokkrum orðum um viðtal Mannlífs við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Sendiherrann segir að viðtalið sé kranaviðtal. Skrif Eiðs bera með sér blæ þeirrar óbeitar sem hann hefur haft á forsetanum. Athyglisvert er þó að Eiður segir þess ekki sjást merki í viðtalinu að forsetanum hafi verið hótað. ,,Hún er röng vegna þess að hún á sér enga stoð í viðtalinu,“ bloggar sendiherrann fyrrverandi. Í viðtalinu kemur eftirfarandi fram: ,,Stundum hefur gætt tilhneigingar af hálfu ráðamanna, í þessari ríflega 60 ára sögu lýðveldisins, til að setja forsetanum skorður, jafnvel beita hótunum þannig að hann ætti erfitt með að uppfylla þær skyldur gagnvart þjóðinni sem honum ber …“. Að lestrinum loknum er nokkuð augljóst að sendiherrann hlýtur að vera treglæs.

 

11 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    — — tengingar Mannlífs  og  DV átti  þetta  auðvitað  að vera.  Einum of  fljótur að vista !!

  2. Eiður skrifar:

     Þakka þér ábendinguna, Steinunn. Þetta er auðvitað rétt hjá þér.

    Logi, ég hugsaði ekki  til tenmingar Mallífs og  DV. Þetta skýrir málið. Takk fyrir það.

    Friðjón, – nú sé ég þetta í nýju ljósi !

    Þakka athugasemdir og ábendingar.

  3. thorrialmennings skrifar:

    Ólafur Ragnar er táknmynd þess sem er ógeðfellt við íslenskt stjórnkerfi. Óheiðarleiki, hræsni, hégómleiki, illgirni, barnaskapur, lygi, siðblind sjálfsást og botnlaust snobb. Hér verður aldrei uppgjör fyrr en þessi maður verður borinn út af Bessastöðum. Ekki hefur hann þann snefil af sómakennd til að segja af sér.

  4. Friðjón Friðjónsson skrifar:

    Kæri Eiður

    Þú misskilur setninguna alveg.

    ,Stundum hefur gætt tilhneigingar af hálfu ráðamanna, í þessari ríflega 60 ára sögu lýðveldisins, til að setja forsetanum skorður, jafnvel beita hótunum þannig að hann ætti erfitt með að uppfylla þær skyldur gagnvart þjóðinni sem honum ber …“

    Ólafur er að tala um sjálfan sig og eingöngu sjálfan sig. Lýðveldissagan er saga ÓRG (13 mánaða og 3 daga við lýðveldisstofnun) og á þessum 65 árum hefur honum verið settar skorður af ráðamönnum og jafnvel beittur hótunum.

    Hann sér ekki muninn…

  5. Eygló skrifar:

    Er þetta ekki dæmigerð „FALLINN“ frétt (Bubbi)

  6. Eygló skrifar:

    Nonnih. Síðueigandi fylgir „gömlu“ kommusetningunni og kann það prýðilega. Minni þig á að punktar eru líka til. 

    Kannski líka ágætt að gera ráð fyrir að ég og þú og hann og hinir gerum ótal villur og mistök þótt við séum jafnframt fjandi góð í þessu.

    En kannski varstu bara að grínast

  7. Logi skrifar:

    Þetta er bara týpískt sölutrikk hjá Reyni Traustasyni og fylgisveinum hans. Skella einhverri krassandi fyrirsögn á forsíðu en svo er innihald fréttar eða viðtals innantómt. Vonandi er öllum kunnugt um að Reynir & co eru DV, dv.is og Mannlíf þannig að eðlilegt er að DV reyni að verja málstað Mannlífs.

  8. Steinunn skrifar:

    Eiður, þú skrifar „Ég sagði, að í viðtalinu kæmi ekki fram að Ólafi Ragnari hefði verið hótað , né hverjir hefðu hótað hverju.“ Samtengingin er „hvorki … né“, ekki „ekki … né“.

  9. ET skrifar:

    Ég er sammála Eiði. Það er talað um  að í 60 ára sögu lýðveldisins, hafi gætt þessarar tilhneigingar. Hvergi orð um að það hafi verið á tíma ÓRG.  Nákvæmni hefur aldrei verið hin sterka hlið DV.

  10. nonnih skrifar:

    Kommusetning er afleit hjá þér, Eiður, þú kannt illa að nota gæsalappir og þarft að fá þér vanan prófarkalesara.

  11. Gústaf Níelsson skrifar:

    Hjá okkar ástsæla forseta er allt á sömu bókina lært. Hann gumar ósjaldan að lærdómi og þekkingu og vart er hann til fjölmiðlamaðurinn, sem þokkalega er kominn af barnsaldri, að hann „Ólafur okkar“ hafi ekki haft hann á hnjám sér í pólitískri innrætingu vestur á Melum, meðan hann undi sér þar. Jóhann Hauksson er sjálfsagt einn þeirra. Nefnir Ólafur Ragnar dæmi um skorður og hótanir, sem leitt hafa til þess að eðlilegum forsetaskyldum, fyrr og síðar, yrði ekki við komið?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>