«

»

Molar um málfar og miðla CXLI

 

Það er algjör óþarfi  hjá  RÚV  að  nota  landaheitið  Montenegro (morgunfréttir  03.09.2009) þegar við  eigum hið gamla  og góða heiti Svartfjallaland. Gott nýyrði er  stikla (Morgunblaðið 03.09.2009) yfir   sýnishorn úr kvikmynd sem á  ensku   er kallað trailer.  Vont  er  hinsvegar heiti á  skyrdrykk frá  fyrirtækinu Mjólku, sem  fyrirtækið kallar boost. Það orð er ekki íslenska  heldur  enska. Svona nafngiftir eru skemmdarverk.

Í tíu fréttum RÚV sjónvarps (02.09.2009) var okkur  sagt að  Ban Ki-moon  aðalritari,eða  framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefði heimsótt norðurheimskautið. Norðurheimskautið er norðurpóllinn. Ban Ki-moon fór    ekki á  norðurpólinn. Hann  hefur verið í heimsókn á  Svalbarða  undanfarna  daga í boði norska umhverfisráðherrans Eriks Solheim og  sigldi  að ísröndinni  við  Svalbarða  norðan við Nýja Álasund,  samkvæmt  fréttum norskra  netmiðla,sem  Molaskrifari  telur  vita meira um málið  en  RÚV.  Þetta eru ekki traustvekjandi vinnubrögð hjá fréttastofu RÚV.    Í íslenski orðabók segir: heimskaut, endi jarðöxulsins, jarðpóll.

Þingmaður klessir  á hjólreiðmann(svo!), segir í  fyrirsögn í Vefdv (02.09.2009), en  vestur í Ameríku ók þingmaður  yfir  gatnamót á rauðu  ljósi og  keyrði á  hjólreiðamann. Þetta þótti fréttnæmt  af því að þingmaður  átti í hlut. Þeir sem  enn hafa ekki  þroskast frá   barnamáli  leikskólans  eiga að  finna sér annað starf en að skrifa  fréttir. Að klessa á, –  er barnamál  sem  ekki á  heima í fréttum. Þeir sem fara um á  reiðhjólum  eru  hjólreiðamenn, ekki hjólreiðmenn eins og  sagði í fyrirsögn Vefdv.

 Bílvelta var í Arnarfirði í dag, segir Vefmoggi (02.09.20089). Einmitt það. Það var  bílvelta. Af hverju ekki : Bíll valt í Arnarfirði í dag ?

 Af umfjöllun fjölmiðla  að undanförnu sést    samhengi hlutanna.  Milljarðagjaldþrot verða þegar menn fara í rekstur sem  þeir  hafa ekki  hundsvit á. Í sumum  fyrirtækjum voru reyndir starfsmenn sem  gjörþekktu  reksturinn og  atvinnugreinina látnir  víkja fyrir  nýliðum  sem vissu ekkert um reksturinn en  voru  góðir í Excel töflureiknivélinni. (Ef ég leyfi mér  svolítinn orðaleik á ensku , mætti segja: They didn´t excel !) Það er ekki sjálfgefið að sá sem kann að selja kaffi og hveiti kunni að reka banka. Eða sá sem grætt hefur á grænmetissölu (munið þið grænmetissvindlið mikla ? ) sé snjall við rekstur flugfélags, sem reyndar tókst að „margselja“ með milljarða „gróða“. Nú eða að kvótakóngur,útgerðarmaður og þyrlueigandi úr Eyjum,sem kann að gera út, sé snjall bílasali og komi einu öflugasta bílaumboði landsins á vonarvöl. Sá hinn sami stofnsetti leikfangaverslun fyrir stóru strákana (vélsleðar,fjórhjól, hraðbátar og fleira) og tapaði milljarði. Englendingar hafa lengi sagt: The difference  between the men and the boys, is the price of their  toys.,  eða: Munurinn drengja og manna er  verðið leikfanganna. Þessir   piltar héldu að þeir  gætu allt  og mættu allt. Þeir gerðu allt. Því fór sem fór.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>