Í ágætu viðtali Kolbrúnar við Sigrúnu Stefánsdóttur,nýjan dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins ohf, í Blaðinu í dag sendir hún fast skot á fréttastjóra RÚV. Sigrún segir:
„Mér finnst engin ástæða til að kasta einhverju út bara til að sýna að kominn sé nýr yfirmaður,slíkt finnst mér vera dæmi um lélegan stjórnanda“.
Prýðilegu fréttastefi Ríkisútvarpsins var nýlega var nýlega kastað fyrir róða og í staðinn sett einhverskonar loftbólustef sem verður að engu í lokin,líklega lélegasta tónsmíð ársins 2007, eins og nefnt var á þessari síðu 01.03.2007
Þegar Ingvi Hrafn tók við stjórnartaumum á fréttastofu Sjónvarpsins af séra Emil Björnssyni fréttastjóra fyrir margt löngu þá skipti Ingvi um fréttastef. þá orti Emil sem var hagmæltur vel:
Til lítils hef ég látið set
laust í frægum stafni,
ef að þetta fréttafret
fylgir Ingva Hrafni !
Sigrúnu sendi ég óskir um velfarnað í starfi.
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
Sigurður G. Tómasson skrifar:
13/04/2007 at 20:23 (UTC 1)
Sæll Eiður!
Hún er skemmtileg vísan! Ég get ekki sagt að mér hafi tekist að venjast nýja stefinu en hef talið mér trú um að það stafi af íhaldssemi. En ósköp finnst mér þetta nýja, lágkúrulegt og svo lekur það niður í endann. Einu sinni var sagt um Reykjavík að hún byrjaði í Bráðræði og endaði í Ráðleysu en þetta voru þurrabúðir eða kot hérna í bænum. En þetta stef byrjar eiginlega bæði og endar í ráðleysu. Einu stefi man ég eftir á stöð 2, sem var samið upp úr stefi í frægum söngleik og bíómynd og var upphaflega með textanum „I wanna be in America….“! Aldrei vandist ég því. Bylgjan notar held ég enn hluta af upphafsstefi BBC, en þeir vissu greinilega ekki Bylgjumenn að þar er það byggt á skammstöfun BBC á morsi!
En best að hætta þessu rausi!
Bestu kveðjur, SGT