Oft er firnagott efni að finna í dagskrá RÚV. Gott dæmi um það er þáttur Jónasar Jónassonar Sumarraddir. Að þættinum loknum (24.05.09.) voru flutt tvö dönsk sönglög ,sem var viðeigandi, meðal annars vegna þess að í þætti Jónasar var sögulegt viðtal við tengdason Íslands leikarann Poul Reumert. Að þessu loknu komu stuttar auglýsingar. Þar var þessi auglýsing: Reunion – Skíðaskálinn í Hveradölum. Þessi auglýsing er atlaga að íslenskri tungu . Hún er að hálfu á ensku. Eiga ekki auglýsingar í íslensku útvarpi að vera á íslensku ? Það er greinilegt að tekið er við hverju sem er gagnrýnilaust hjá auglýsingadeild RÚV. Þar virðist lítið hugsað, – allavega ekki um málvernd.
Einu sinni var í gildi reglugerð um auglýsingar og kostun dagskrárefnis í Ríkisútvarpinu, gefin út í menntamálaráðherratíð Svavars Gestssonar. Þar sagði í 3. gr. tölulið 2 : Auglýsingar skulu vera á lýtalausu íslensku máli. Sé þessi reglugerð enn í gildi er ljóst að RÚV hefur þverbrotið hana með ofangreindri auglýsingu. Enska orðið reunion er ekki lýtalaus íslenska.Það er lýtalaus enska. Orðið endurfundir, sem samsvarar enska orðinu reunion, er hinsvegar lýtalaus íslenska.Kannski er búið að fella þessa reglugerð úr gildi. Kannski hefur það gerst með OHF-væðingu RÚV .
Dæmi um aðrar enskuslettur í auglýsingum RÚV eru Brunch á sunnudögum – Hótel Loftleiðir og Tax-free á öllum garðhúsgögnum – Húsasmiðjan. Seinni auglýsingin er reyndar efnislega röng. Húsasmíðjan hefur ekki frekar en önnur fyrirtæki rétt til að fella niður virðisaukaskatt af seldum vörum. Þótt veittur sé afsláttur sem nemur virðisaukaskattinum hefur það ekkert með skattleysi að gera.
Það er að bera í bakkafullan lækinn að tala enn einu sinni um enskuslettuna Outlet sem nokkrir íslenskir kaupahéðnar hafa tekið sérstöku ástfóstri við. Í Fréttablaðinu (23.05.09.) er stór auglýsing þar sem lesa má um Merkjaoutlet sem sé stærsta outlet landsins. Þeir sem svona auglýsa og þeir sem semja svona auglýsingar eru íslensku máli miklir óþurftarmenn.
Eitt orð enn um enskuslettur. Í Fréttablaðinu er fyrirsögn (23.05.09.) Eighties mætir átjándu öld. Í textanum undir þessari fyrirsögn (get ómögulega kallað það frétt) er raunar ekkert sem skýrir fyrirsögnina. Svona skrifa bara málsóðar.
Á forsíðu Morgunblaðsins (25.05.09.) er mynd frá löndun á Arnarstapa. Þar er talað um veiðitúr. Það er andstætt málvenju að segja að bátar af þeirri stærð sem myndin sýnir fari í veiðitúr. Þeir fara í róður. Þegar um er að ræða stærri skip, sem eru lengur á sjó, er stundum talað um túra. Til dæmis heyrist sagt um vel heppnaða veiðiferð togara: Við gerðum góðan túr.
ES Þegar ég fjallaði um að Morgunblaðið væri hætt að birta reglulega þætti um íslenskt mál hefði ég átt að geta þess að Gísli Jónsson menntaskólakennari á Akureyri skrifaði árum saman vinsæla þætti um íslenskt mál í Morgunblaðið. Mér finnst óskiljanlegt að þetta aldna og virðulega blað skuli ekki sýna móðurmálinu meiri virðingu en raun ber vitni.
6 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
26/05/2009 at 16:37 (UTC 0)
Tek undir það, að lagersala er fínt orð. – Hjördís, ég hef ekki skrifað um þetta, en orðið lágvöruverslun er auðvitað bara bull. Lágvörur eru ekki til. Held hinsvegar að ég hafi heyrt talað um lágvöruverðsverslanir, – en það er nú hálfgert klúður.
Hjördís skrifar:
26/05/2009 at 15:14 (UTC 0)
Nú veit ég ekki hvort þú hefur skrifað um þetta – en mikið óskaplega fer í mig þegar talað er um lágvöruverslanir. Hvað er lágvara?
Steini Briem skrifar:
26/05/2009 at 00:40 (UTC 0)
Lagersala er ekki nógu fínt orð fyrir þá sem kalla verslanir sínar Outlet.
Það virðist vera vandamálið en ekki það að verslunarfólk þekki ekki orðið lagersala.
Heimir Tómasson skrifar:
25/05/2009 at 23:04 (UTC 0)
Hárrétt hjá þér Oddur…. einhvernveginn hafði orðið lagersala alveg dottið út hjá mér.
Oddur skrifar:
25/05/2009 at 15:28 (UTC 0)
Outlet er venjulega kallað lagersala … eða var það að minnsta kosti um tíma.
Steini Briem skrifar:
25/05/2009 at 12:15 (UTC 0)
Á vef Ríkisútvarpsins:
Auglýsingar skulu vera á lýtalausu íslensku máli. Heimilt er þó að erlendir söngtextar séu hluti auglýsingar.
Reglur þessar voru samþykktar á stjórnarfundi RÚV ohf. þann 24. mars 2009 og taka þær þegar gildi.
Reglur um auglýsingar í Ríkisútvarpinu.