Líklega hafa allir blaðamenn upplifað það að vera trúað fyrir viðkvæmum upplýsingum,sem ekki væru til birtingar. Til dæmis skýringum á því hversvegna gæti verið skaðlegt almannahagsmunum eða rannsóknarhagsmunum (eins og það heitir víst núna) á þeim tímapunkti að greina frá því sem blaðamaðurinn vissi. Ég held að langflestir hafi virt þennan trúnað, enda máttu þeir vita að sá sem trúði þeim fyrir upplýsingunum mundi aldrei treysta þeim aftur, ef þeir ryfu trúnaðinn. Margir blaðamenn hafa líka upplifað það að reynt hefur verið að misnota þá með því að leka til þeirra röngum upplýsingum. Þar þurfa fjölmiðlamenn sífellt að vera á varðbergi. Það er líka nokkuð algengt að einkum ungir, lítt reyndir athyglisfíklar úr hópi stjórnmálamanna reyni að koma sér í mjúkinn hjá blaðamönnum með því að leka til þeirra trúnaðarupplýsingum. Til þess að eiga hönk upp í bakið á blaðamanninum síðar. Innst inni held ég að heiðarlegir blaðamenn hafi skömm á slíkum stjórnmálamönnum. Það var rétt sem Helgi Hjörvar sagði í Kastljósi RÚV (14.08.2009) að eitt það versta við leka eins í Icesave málinu á ögurstundu er að allir liggja undir grun.
En lifandis ósköp gekk formanni Framsóknarflokksins illa í þessum sama sjónvarpsþætti að afneita því að hann hefði lekið þessum upplýsingum til fjölmiðla. Hann var eiginlega svo ósannfærandi sem mest mátti verða.
Hitt skal svo viðurkennt að upp geta komið tilvik þar sem almannahagsmunir eru svo ríkir að birta ber upplýsingar sem yfirvöld vilja að séu trúnaðarmál. Þau tilvik eru fá, en alltof ríkrar tilhneigingar gætir hjá yfirvöldum að setja trúnaðarstimpil á mál sem engin ástæða er til að halda leyndum.
Icesave lekinn var eitthvert alvarlegasta trúnaðarbrot þingsögunnar í áratugi
Að lokum óska ég Guðbjarti Hannessyni formanni fjárlaganefndar til hamingju. Hann hefur ekki átt sældardaga eða sæluvikur að undanförnu. Hann á heiður skilinn.
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
Sigurður skrifar:
15/08/2009 at 11:45 (UTC 1)
Þetta mál þarf að klára, það er á hreinu. Undarlegt hversu fljót Samfylkingin var að slá þetta allt út af borðinu. Held það væri henni ekki í hag ef upp kæmist um hver lak.