Átakanlegt var að horfa á Kastljós að kveldi annars páskadags, er sýnt var myndband af því er bandarískir hermenn skjóta óbreytta borgara í Bagdad með hríðskotabyssu úr þyrlu. Þetta var skelfilegt og þyngra en tárum tekur að horfa á saklausa borgara myrta og heyra svo hermennina hreykja sér af voðaverkunum. Það er hinsvegar ámælisverð dagskrárgerð …


