Stórskemmtilegt var að hlusta á frásagnir Eiríks Kristóferssonar skipherra í samtali frá árinu 1966 við Jónas Jónasson (Rás eitt, RÚV 11.04.2010). Eiríkur talaði vandað mál, enda af þeirri kynslóð og ekki langskólagenginn. Hann talaði um myrkhræðslu, ekki myrkfælni (bæði orðin að sjálfsögðu góð og gild) og hann sagðist hafa sett stefnuna þannig að þeir væru langlausir …


