Í leiðréttingu í Fréttablaðinu (28.04.2010) segir: Þar víxluðust vörumerki Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Vörumerki? Af hverju ekki flokksmerki? Í hádegisfréttum RÚV (23.04.2010) var fjallað um hugmynd umhverfisráðherra um bann við hreindýraveiðum og rjúpna- og gæsaveiðum á tilteknum svæðum í Vatnajökulsþjóðgarði. Viðmælandi fréttastofu sagði að bannið væri tilhæfulaust. Að eitthvað sé tilhæfulaust , þýðir að það sé upplogið, ekki fótur fyrir því. …


