Hafin er herferð gegn ölvunarakstri og er það vel. Fjölmiðlar herma að IOGT samtökin standi fyrir herferðinni. IOGT er ensk skammstöfun (International Order of Good Templars) heitis alþjóðlegrar bindindishreyfingar, sem hafði mikil áhrif á Íslandi á sínum tíma en er nú að mestu horfin úr sviðsljósi samtímans líkt og ungmennafélögin. Þessi hreyfing heitir á íslensku …
Monthly Archive: júní 2010
Molar um málfar og miðla 330
Í tíufréttum Ríkisútvarpsins (16.06.2010)sagði fréttaþulur okkur frá knattspyrnukappleik milli Suður Kóreu og Úrúgvæ. Þegar fram í fréttina kom var leikurinn hinsvegar milli Suður Afríku og Úrúgvæ ( sem var hið rétta). Enn eitt dæmið um þann vonda sið sumra fréttamanna að hlusta ekki á það sem þeir lesa, heldur lesa vélrænt, – eins og vélmenni. …
Molar um málfar og miðla 329
Gleðilega hátíð ! Í heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu (17.06.2010) um dagskrá þjóðhátíðardagsins í höfuðborginni segir að milli klukkan 13 00 og 16 00 sé Hópakstur Krúsers og síðan sýning. Krúserbandið leikur. Hefði Jón Sigurðsson skilið þetta? Áreiðanlega ekki. Hér hafa menn tekið enska orðið cruiser og , skrifað það eftir framburði og nota það um stóra bandaríska …
Molar um málfar og miðla 328
Hennar hugur virðist hins vegar enn vera hjá Reykjavíkurborg og því myndi hún ekki gefa kost á sér.(mbl.is.13.06.2010). þessi setning er ekki í lagi. Verið var að fjalla um hvort Hanna Birna ,senn fyrrverandi borgarstjóri, mundi gefa kost á sér í embætti varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum undir lok þessa mánaðar. Fyrri hluti setningarinnar er getgáta blaðamanns, …
Molar um málfar og miðla 327
Boðað til mótmæla vegna ráðningu bæjarstjóra í Hafnarfirði, segir í fyrirsögn (visir.is 11.06.2010). Þetta á auðvitað vera ráðningar, ekki ráðningu. Besti sigraði umræðuna, segir í fyrirsögn á mbl.is (14.06.2010)og er þar verið fjalla um hlut Besta flokksins í fjölmiðlaumræðu fyrir kosningar. Málfar íþróttafréttamennsku ræður nú ríkjum á ritstjórninni. Ungur og ölvaður karlmaður braust inn í …
Molar um málfar og miðla 326
Það þarf að taka ýmsa í Efstaleitinu í tíma í beygingarfræði tungunnar og það þótt margir þar séu prýðilega máli farnir. Fréttaþulur í hádegisfréttum (11.06.2010) las: Þeir prestar ,sem andvígir eru lögunum er þó heimilt að neita að gifta samkynhneigða. Hann hefði auðvitað átt að segja: Þeim prestum, sem…. Það er alltof algengt, að þegar …
Molar um málfar og miðla 325
Úr mbl.is (10.09.2010): Jón Gunnarsson, Bjarni Benediktsson og Unnur Brá Konráðsdóttir kváðu sér einnig hljóðs .. Hér er ruglað saman sögnunum að kveða og kveðja. Að kveðja sér hljóðs er að biðja um orðið eða taka til máls. Kveðja, kvaddi, kvöddum kvatt. Þau kvöddu sér hljóðs. Ræður þeirra kváðu (ku) hafa verið arfaslakar, voru sagðar …
Molar um málfar og miðla 324
Úr mbl.is (09.06.2010): …vegna kostnaðar sem félagið hafði lagt í vegna markaðssetningar sem nýttist ekki vegna úthlutun á sérleyfisakstri á Vestfjörðum árið 1997. Hér ætti auðvitað að standa : .. vegna úthlutunar. Ekki vegna úthlutun, sem er ambaga. Meira úr mbl.is (09.062010): Um er að ræða upplýsingar í dag, ekki gögn frá fyrri tíma.Ekki verður sagt,að …
Molar um málfar og miðla 323
Það er ennþá 2007 hjá Orkuveitu Reykjavíkur, þegar þetta fyrirtæki í almannaeigu kaupir átta milljón króna Benz handa fjármálastjórann, að sögn DV (09.06.2010). Þeir voru kannski aðeins of fljótir á sér. Í dag (09.06.2010) auglýsir Bílabúð Benna 14 milljón króna Porsche jeppa. Sá bíll hefði örugglega farið þessum embættismanni vel. Maður verður að komast fljótt og greiðlega …
Molar um málfar og miðla 322
Úr dv.is (07.06.2010): Hún segist ekki hafa mætt andstöðu innan flokksins eftir úrslit kosninganna en flokkurinn hlaut afhroð í kosningunum og náði aðeins einum borgarfulltrúa inn. Á íslensku er talað um að gjalda afhroð eða bíða afhroð, bíða herfilegan ósigur, ekki hljóta afhroð. Dv.is fær engu breytt um það. Meir úr dv.is þennan sama dag:Meira …


