Lengi morguns (07.06.2010) mátti lesa eftirfarandi fyrirsögn á visir.is : Dauði vegna vímuefnaefnaneyslu óvenju há fyrstu fjóra mánuðina. Sá sem samdi þessa fyrirsögn ætti að leita sér að annarri vinnu. En þeim er ekki alls varnað á visir.is. Seinna var fyrirsögnin leiðrétt: Dánartíðni vegna vímuefnaneyslu óvenju há fyrstu fjóra mánuðina. Bjarni Sigtryggsson, Molavin, gaukaði eftirfarandi …
Monthly Archive: júní 2010
Molar um málfar og miðla 320
Í fróðlegu og fínu Sjómannadagsblaði Morgunblaðsins (05.06.2010) segir í auglýsingu: Starfsfólk Naust Marine senda sínar bestu kveðjur til allra sjómanna…. Starfsmenn senda kveðjur, en starfsfólk sendir kveðjur. Þegar Ríkisútvarpið segir okkur (06.06.2010), að eldur hafi logað á 400 metra löngu svæði í Heiðmörk, erum við ákaflega litlu nær. Svo er líka svolítið einkennilegt að heyra …
Molar um málfar og miðla 319
Í íþróttafréttum Stöðvar tvö (03.06.2010) var sagt um mann, að hann yrði ávallt í minningum stuðningsmanna Liverpool. Ankannalega að orði komist um það, að maðurinn verði stuðningsmönnum Liverpool eftirminnilegur. Í íþróttafréttum Stöðvar kvöldið eftir sagði fréttamaður: Stjarnan sigraði leikinn. Mistur af þessu tagi verða líklega viðvarandi vandamál í allt sumar, sagði fréttaþulur í fréttayfirliti Stöðvar tvö …
Molar um málfar og miðla 318
Nýlega heyrði Molaskrifari á einhverri útvarpsstöðinni, að talað var um að binda ekki skóþvengi sína eins og aðrir menn. Molaskrifari er á því að þetta sé mesta rugl. Í ágætri bók dr. Jóns G. Friðjónssonar, Merg málsins, segir um skóþveng/skóþvengi : Binda skóþvengi sína, er að tygja sig til brottfarar. Binda ekki skóþvengi sína /skóþveng sinn …
Molar um málfar og miðla 317
Fréttaþulur Stöðvar tvö las óhikað (31.05.2010) Landsmót hestamanna,…. hefur verið aflýst. Hér átti auðvitað að segja að Landsmóti hestamanna hefði verið af lýst. En þetta var ekki eina beygingarvillan í þessum fréttatíma Stöðvar tvö. Þar var líka sagt: .. um er að ræða .. ( þrjá seðlabankastjóra) ..auk Jónas Fr. Jónsson. Hér hefði átt að segja:.. …


