Molar um málfar og miðla 956

Lesandi sendi þessar línur (15.07.2012): ,,Ekki veit ég hvort það er sett mönnum til gamans eða af hrekkleysi en á bls. tvö Fréttatímanum 13.-15. júlí, í greininni LAUMUFARÞEGINN OG SPORÐDREKINN OTTÓ ER ALLUR segir frá plágu af spánarsniglum. Þar er viðvörunin: Þessi rauðbrúni snigill er plága í Skandinavíu og óttast menn að hann sé að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 955

…þar verða allir hröðustu menn heimsins samankomnir, sagði íþróttaafréttamaður Stöðvar tvö (14.07.2012). Hann var segja frá íþróttamóti þar sem mestu hlaupagarpar í heimi reyna með sér. –  Annie sem sigraði Heimsleikana í fyrra, sagði íþróttafréttamaður Ríkissjónvarpsins (14.07.2012). Það sigrar enginn leika fremur en keppni. Sami fréttamaður talaði um bát sem flaug í heilhring !   …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 954

  Lesandi bendir frétt á mbl.is (12.07.2012) sem ber fyrirsögnina: Fargjöldin ódýrari en í vor, http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/07/12/fargjoldin_odyrari_en_i_vor/. Hann segir síðan: ,,Hvernig skyldi t.d. 20.000 kr. fargjald vera verðlagt við sölu?? Í meginmáli fréttar kemur einnig fram, að verð séu nú ódýrari en fyrr. Af samhengi má þó ráða um sé að ræða lækkun fargjalda, það er …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 953

Norskur miðvörður í Selfoss, sagði í fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins (11.07.2012). Hvað skyldi þetta þýða? Knattspyrnulið á Selfossi hefur keypt sér norskan atvinnumann í knattspyrnu.   Fyrsta frétt í seinni fréttum Ríkissjónvarps á miðvikudagskvöld (11.07.2012) var að bandaríska fulltrúadeildin hefði fellt  frumvarp Obama forseta um heilbrigðismál. Ekki var þetta meiri frétt en svo vestra að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 952

Í fréttatíma Stöðvar tvö talaði fréttamaður (10.07.2012) um tvær líkamsræktir í húsi þar sem eldur kom upp. Slökkviliðsmaður sem rætt var við talaði hinsvegar um tvær líkamsræktarstöðvar. Betra. Þá komu áhafnarmeðlimir ítrekað við sögu í sama fréttatíma þar sem betra hefði verið að tala um skipverja. Lífseigt fyrirbæri áhafnarmeðlimir. Í myndatexta á forsíðu Morgunblaðsins (11.07.2012) …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 951

Molaskrifari vitnaði að gefnu tilefni í setninguna ágætu: Árni á Á á á. Viðar Hjartarson bætti um betur. Hann segir: Enn má bæta um betur: Árni á Á á á á beit. Molaskrifari þakkar Viðari þessa ágætu sendingu. Lesandi benti á frétt á mbl. is um að þýska ríkið fái borgað fyrir að taka lán …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 950

Utan að sér heyrði Molaskrifari enn einu sinni að í auglýsingu á Stöð tvö (08.07.2012) var talað um að versla sér hótel á netinu, í merkingunni að panta og greiða fyrir hótel herbergi erlendis. Þeir sem bera ábyrgð á þessari auglýsingu ættu að sjá sóma sinn í að breyta henni til betra máls. Páll Vilhjálmsson …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 949

Úr mbl.is (07.07.2012) : ,,Þetta er rosalega góð byrjun,“ segir Trausti Bjarnason, bóndi á Á á Skarðsstönd, um veiðina í Krossá,… Gaman að þessu. Næstum eins gott og: Árni á Á á á.   Sívalaturn 375 ára, segir í fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins (07.07.2012). Ætti að vera: Sívaliturn 375 ára.   Lesandi (07.07.2012) vísar á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 948

Hvergi í veröldinni gæti það líklega gerst nema í íslenska Ríkisútvarpinu að það væri fyrsta frétt í fréttatíma klukkan 22 00 á laugardagskvöldi (07.07.2012) að erlendur ferðamaður hefði misst framan af fingri við að setjast á stól! Ótrúlegt en satt.  Dálítið undarlegt orðalag í frétt á mbl.is (07.07.2012): Að minnsta kosti 46 létust þegar það …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 947

Í fréttum á miðnætti (05.07.2012) var sagt í Ríkisútvarpinu, að lögreglan hefði haft augu með konunni. Málvenja er að tala um að hafa auga með, ekki augu, fylgjast náið með einhverju.   Það var rangt fréttamat hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins (06.07.2012) að vera með sem fyrstu frétt í aðalfréttatíma kvöldsins að mál þar sem einn af …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts