LYSTISKIPIN Í fréttum Stöðvar tvö (07.03.2016) var sagt frá lystiskipum (sem ævinlega eru kölluð skemmtiferðaskip) sem væntanleg eru til landsins á árinu. Það fyrsta væri þegar komið. ,,Skipið heldur af landi brott í kvöld”, sagði fréttamaður. Kannski hefði verið betra að segja, að skipið léti úr höfn í kvöld. Fréttamaður sagði okkur líka frá Reykjavíkurhöfn …
Molar um málfar og miðla 1903
SLÆM HELGI HJÁ NETMOGGA Molavin skrifaði: ,,Svona er nú komið fyrir Morgunblaðinu (amk. netútgáfu þess). Í frétt í dag, 6.mars, segir orðrétt: „Þrítug kona var brennd til bana á föstudaginn af bræðrum sínum…“ og síðar: „Þeir framkvæmdu einnig jarðarförina sama kvöld…“ Les enginn yfir?” Nei, ágæti Molavin. Yfirlestur heyrir sennilega sögunni til á þessum bæ. …
Molar um málfar og miðla 1902
AÐ MALDA Í MÓINN Molavin skrifaði (04.03.2016): „Hann (Ted Cruz) reyndi nokkrum sinnum að malda í móinn þegar hvað hæst lét á milli Rubio og Trump og bað Trump ítrekað um að anda rólega.“ Svo orðar fréttamaður Ríkisúrvarpsins á síðu RUV (4.3.2016) þegar hann greinir frá því að einn fjögurra frambjóðenda Repúblikana hafi í kappræðum …
Molar um málfar og miðla 1901
SINN OG HANS Þorsteinn Davíð Stefánsson skrifaði (02.02.2016): ,,Sæll, Eiður. Við lestur Moggans á netinu hnaut ég um einkennilegt orðalag. Þar er sagt að Osama Bin Laden hafi beðið föður sinn að annast eiginkonu hans. Ég hef vanist því að eigi orðið, annaðhvort sinn eða hans, við frumlagið skuli ,,sinn“ notað en eigi það við …
Molar um málfar og miðla 1900
BANASPJÓTIN Molavin skrifaði (02.03.2016): „Repúblikanar í Travis-sýslu í Texas berjast á banaspjótum þessa dagana segir Netmoggi í dag (2.3.2016). Það er í sjálfu sér virðingarvert að blaðamenn noti fornar samlíkingar úr bardagasögum við kosningabaráttu nútímans, en þá verða þeir að þekkja þau orðtök, sem beitt er. Að berast á banaspjót(um) – en ekki berjast á …
Molar um málfar og miðla 1899
BÆJARSKRIFSTOFUR BÆJARINS Í sex fréttum Ríkisútvarps (27.02.2016) var fjallað um deilur í bæjarstjórn Kópavogs um það hvar skrifstofur bæjarins skyldu vera til húsa. Fréttamaður talaði um bæjarskrifstofur bæjarins. Bæjarfulltrúi ruglaði saman því að kjósa og geiða atvæði um eitthvað. Þessi ruglingur virðist því miður vera orðinn fastur í málinu. Þetta hefur nokkrum sinnum verið …
Molar um málfar og miðla 1898
SÆLL Í SINNI TRÚ Víkverji Morgunblaðsins er sæll í sinni trú (26.02.2016) Víkverji trúir því greinilega og er sannfærður um að ekki þurfi aðra fjölmiðla á Íslandi en Morgunblaðið. Í Víkverjapistlinum segir: ,,Ef það er ekki í Morgunblaðinu skiptir það ekki máli, sagði ágætur maður fyrir margt löngu. Þessi staðhæfing lifir ekki aðeins góðu lífi, …
Molar um málfar og miðla 1897
AÐ ÚÐA Molavin skrifaði (26.02.2016) :,, Á síðu Ríkisútvarpsins segir í frétt (26.02.2016 – Ásrún Brynja Ingvarsdóttir): „Laust fyrir klukkan eitt í nótt var tilkynnt um tvo pilta vera að spreyja á húsveggi í vesturbæ Reykjavíkur.“ Ekki er ljóst hvort fréttamaður tekur þetta orðrétt úr tilkynningu lögreglu, þar er margt kynduglega orðað, en vart er …
Molar um málfar og miðla 1896
BARNAMÁL Í íþróttafréttum Ríkissjónvarps (24.02.2016) sagði fréttamaður: ,, .. og því verður leikurinn pínu sérstakur fyrir hana.”. Ekki tala við okkur á barnamáli í fréttum. Ekki heldur í íþróttafréttum. MEINLOKA Af mbl.is um bíl sem náðist upp úr inntakslóni á hálendinu (24.02.2016): ,,Landsvirkjun lagði áherslu á að ná bílnum upp sem fyrst til að …
Molar um málfar og miðla 1895
KONUR MENTORA KONUR Í morgunþætti Rásar tvö (23.02.2016) var kynntur fyrirhugaður fundur eins og oft er gert , og oft er góð ástæða til. Konan, sem rætt var við, talaði oftar en einu sinni um konur, sem væru að mentora konur. Átti líklega við að konur væru að leiðbeina konum, aðstoða konur. Molaskrifari er ekki …