Það verður ekki af Framsóknarbloggurum skafið , að þeir hafa skemmtilegan húmor, sumir hverjir að minnsta kosti. Árum saman var gert grín að því að Framsóknarflokkurinn væri opinn í báða enda. Framsóknarþingmaðurinn Helga Sigrún Harðardóttir er með bloggsíðu undir enskri fyrirsögn: „Those are my principles. If you don´t like them, I have others!“ Þetta …
Um Moggamálfar
Ósköp er að þurfa að lesa: „Íslenskt landslag bregður fyrir í nýrri auglýsingu frá Co-operative Group sem ætlað er að vekja athygli á að fyrirtækið geri strangar kröfur um viðskiptasiðferði.“ Það er ambaga að tala um að eitthvað bregði fyrir. Einhverju bregður fyrir. Ámátlegt er líka að segja eins og stendur í myndatexta: „Íslensk náttúra …
„Langar ekki öllum……“
Ágætur skólamaður ,sem ég hitti á förnum vegi við Bónus í Hafnarfirði í hádeginu í dag vakti athygli mína á því að popparinn Páll Óskar hefði tvívegis opinberað það sjónvarpi ríkisins á laugardagskvöld að hannn er illa haldinn af þágufallsýki. Þessi sami poppari bullar yfir okkur á næstum hverju kvöldi í sjónvarpinu um eitthvað sem …
Tvöfeldnin holdi klædd
Í Morgunblaðinu í dag er mynd af sendiherra mestu hvalveiðiþjóðar í heimi, Bandaríkjanna, að afhenda Steingrími J. Sigfússyni fjármála, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra mótmælaskjal nokkurra sendiráða í Reykjavík gegn hvalveiðum Íslendinga. Þetta er sannarlega tvöfeldnin holdi klædd.Engin þjóð er athafnasamari við hvalveiðar en Bandaríkjamenn.Þeir veiða meira segja úr stofnum sem illa þola veiðar og gætu verið …
Hvar er fagmennskan,RÚV ?
Ein af grundvallareglunum í fréttamennsku, sérstaklega í ljósvakamiðlum er að spyrja ekki tveggja spurninga í einu. Í kvöld spurði fréttamaður RÚV Sjónvarps Hönnu Birnu borgarstjóra í Reykjavík um vetrarhátíð í borginni. Fréttamaður lagði tvær spurningar fyrir borgarstjóra í sömu setningunni. Borgarstjóri, klókur pólitíkus, svaraði bara annarri spurningunni og það hvarflaði greinilega ekki að fréttamanni sjónvarpsins að fylgja …
Skottulækningar í TIME
Í vikuritinu TIME, nýjasta heftinu (dags. 16 febrúar 2009) er grein sem heitir “Detox Shmeetox. The truth about pollutant-draining footpads, colonics and other supposedly healthy cleansers”. Auðvelt er að nálgast greinina á netinu. Höfundur hennar er Alice Park. Í greininni er vitnað í Dr. Benneth Roth,sem er yfirmaður meltingarlækninga við UCLA. Hann segir …
Skemmtileg fyrirsögn
Það er skemmtileg fyrirsögn á frétt prentmoggans í dag um heimsókn forsetahjóna í Hvolsskóla:"Forsetahjónin sátt meðal nemenda". Þau voru sem sagt ekki að kýta, eins og í blaðaviðtalinu á dögunum. Gott. Húmor finnst enn á Morgunblaðinu. Megi þeim hjónum semja sem best og þau lifa í góðri sátt við hundinn sinn. Forsetahjónin skoðuðu Hvolsskóla
Hvað skuldar fréttastofa RÚV Jónínu Ben.?
Fyrir nokkru var þrísagt í sama fréttatíma RÚV sjónvarps, að forsetafrúin væri að aðstoða við að markaðssetja stólpípumeðferðina sem athafnakonan Jónína Benediktsdóttir rekur nú við Mývatn. Að því var þá vikið á þessari síðu. Af fréttinni var ómögulegt að ráða annað en að frú Dorrit Moussajeff væri einhverskonar verndari eða markaðstjóri stólpípu- og afeitrunarmeðferðar Jónínu. Forsetaskrifstofan sendi …
Hver kaus Hörð Torfason ?
Hörður Torfason heldur að hann stjórni Íslandi. Í fréttum RÚV sjónvarps í kvöld heyrðum við hann segja: „….en Davíð, og hvað heitir hann, Eiríkur, mega ekki fara inn“. Þeir Davíð og Eiríkur hafa kosið að verða ekki við tilmælum forsætisráðherra um að láta af störfum. Á því geta menn haft ýmsar skoðanir, en sú ákvörðun þeirra gefur Herði …
„Að gera kostakjör“
Það er hrein undantekning að hlusta á heilan fréttatíma í ljósvakamiðlum án þess að heyra ambögur. sama gildir reyndar um lestur netmiðlanna. Í sjónvarpsfréttum áðan talaði fréttamaður um „að gera kostakjör“ á útsölum í Kringlunni. Átti líklega við að þar væri hægt að gera kostakaup. Í sama fréttatíma var talað um að „eiga fangið fullt með“. …