«

»

Molar um málfar og miðla 249

Hvaða lausnir  sérðu möguleika á? Svona orðaði fréttamaður  RÚV  spurningu í hádegisfréttum  (30.01.2010). Hann hefði getað sagt:  Hvaða lausnir eru í sjónmáli ?  Eða: Hvaða lausnir eru  mögulegar?, – ekki gott.    (30.01.2010)   Í sama fréttatíma var sagt: „… strax á eftir  helgina.“. Þarna  var á-inu ofaukið.

 Lögreglubolir enn á lausu, sagði í  þriggja dálka  forsíðufyrirsögn í Morgunblaðinu (30.01.2010). Fréttin var um stuttermaboli ,sem  stolið var, en  bolirnir eru merktir lögreglunni.  Í Íslenskri  orðabók segir hinsvegar að vera á lausu þýði  að vera ekki bundinn í  vinnu eða vera ógiftur, ekki í   ástarsambandi.

 Í Fréttablaðinu (30.01.2010)  er fjallað um kaup Málningar á Slippfélaginu. Í fréttinni segir: „Botninn tók úr  rekstrargrundvelli Slippélagsins nokkru  fyrir síðustu áramót…“   Þetta er illa  að orði komist að mati Molaskrifara. Botninn getur ekki tekið úr  einu eða neinu. Til dæmis  hefði mátt segja  að rekstargrundvöllur  Slippfélagsins hafi  brostið nokkur fyrir síðustu áramót.

 Íslenskir kaupmenn virðast flestir sammála um að troða enskuslettunum TAX FREE  inn í móðurmálið.  Nú hefur  Europris  bæst í hóp þeirrra fyrirtækja sem  auglýsa   vörur undir  þessu slagorði.  Slæm þróun.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>