«

»

Molar um málfar og miðla 573

  Fljótt á  litið virðist  andlitslyfting sjónvarpsfrétta Ríkisútvarpsins hafa tekist  bærilega, – nema iðandi  og órólegur  veggur bak við  fréttaþul   truflar og er pirrandi. Dregur athyglina  frá því sem verið er að segja.  Því ætti að breyta sem fyrst. Veðurfregnir hafa líka fengið nýjan svip. Gaman hefði verið að sjá  til veðurs í vesturheimi, en  þaðan fáum við veðrið flesta daga. Allt þarf þetta þó að skoðast betur og venjast.

 Í  sexfréttum Ríkisútvarpsins (30.03.2011) var talað um   flugfélagið Iceland Express. Fréttastofa  Ríkisútvarpsins á að fara rétt með staðreyndir. Það var ekki gert í þessu tilviki. Iceland Express er ekki flugfélag. Fyrirtækið hefur ekki flugrekstrarleyfi. Iceland Express er heldur ekki ferðaskrifstofa  því fyrirtækið hefur ekki ferðaskrifstofuleyfi. Iceland Express er   samkvæmt upplýsingum Ferðamálastofu  svokallaður ferðamiðlari. Ekki flugfélag. ekki  ferðaskrifstofa. Það er frumskylda  fréttastofu Ríkisútvarpsins að  segja okkur satt og  rétt frá því sem um er fjallað. Það er rangt að koma því inn hjá almenningi, að Iceland Express sé flugfélag.  Morgunblaðið er  með þetta á hreinu (31.03.2011): Flugfélagið Astraeus, sem meðal annars flýgur með farþega Iceland Express, hefur neitað formlegri beiðni Félags íslenskra atvinnuflugmanna …..

  Undarlegt að heyra  gamla  dönskuslettu úr munni ungs fréttamanns á Stöð   tvö sem  sagði, að  dans  spilaði stóra  rullu á  Listahátíð. Ótrúlega lífseig  sletta.

Í fyrirsögn á grein fyrrum ráðherra   í Fréttablaðinu (31.03.2011) segir: Staðan á Helguvík. Fjallað er um  stöðu væntanlegs álvers í Helguvík. Fyrirsögnin  hefði því átt að vera: Staðan í Helguvík.

Fíflagangur eins og  viðhafður  var í  fréttum Ríkissjónvarpsins (31.03.2011) á að vera  fyrir neðan virðingu   fréttastofunnar.

Molaskrifara varð á í messunni í  Molum gærdagsins, er  hann eignaði  Morgunblaðinu  setningu, sem  tekin var út úr bréfi Þorkels Sigurlaugssonar  í blaðinu og birt með stærra letri inni í texta bréfsins. Um þetta lét  skrifari þung orð falla. Hafa skal það sem  sannara reynist og þessi  feitletraða setning  var   úr penna  höfundar bréfsins, svo ótrúlegt sem það er. Hún var ekki frá Morgunblaðinu komin.  Setningin var  ekki tilvitnun í bréfið  og á  skjön við það sem þar var sagt. Öðruvísi gat  Molaskrifari ekki skilið  hana.  Morgunblaðið er beðið velvirðingar á þessu.

Því er oft  gaukað að Molaskrifara,  að skötuhjúin, sem  láta móðan mása í Útvarpi  Sögu tali illa um hann,- stundum dag eftir dag.  Molaskrifari er mjög ánægður með það.  Verra  væri, ef þessu liði lægi gott orð til hans. Það væri skelfilegt.

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Nei, – þetta er ekki boðlegt.

  2. Alli skrifar:

    „Die gerði sér nefnilega fyrir og sló boltastrák þéttingsfast utan undir í leik gegn Lausanne“

    Afritað af Vísir.is Er þetta boðlegt? Hvar er fagmennskan og virðing fyrir tungumálinu?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>