Monthly Archive: desember 2014

Molar um málfar og miðla 1634

Ekkert sjóferðaveður næstu daga, var fyrirsögn á mbl.is (09.12.2014). Auðvitað er ekkert rangt við að tala um sjóferðaveður, – þótt málvenja sé að tala um sjóveður. Í fréttinni var talað um að skip og bátar þyrftu að leita skjóls. Málvenja er að tala frekar um að sigla í var eða leita vars, komast á lygnari …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1633

Molavin skrifaði (09.12.2014): ,,Talsverðar umræður hafa átt sér stað á fólksmiðlum að undanförnu um skert framlög skattgreiðenda til Ríkisútvarpsins. Um þá staðreynd verður ekki deilt – en á móti kemur að RUV stendur heldur ekki við sinn hluta samningsins við ríki og skattgreiðendur, sem lögin eru, meðan það sniðgengur skyldur sínar um meðferð íslenskrar tungu. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1632

Í kvöldfréttum Ríkisútvarps og sjónvarps og á vef  Ríkisútvarpsins var tekið svona til orða (08.12.2014):  ,,Vegagerðin varar við ófærð um Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði í kvöld og að fjallvegir á Austfjörðum loki um miðnætti.” Fjallvegir loka hvorki einu né einu. Hér hefur sennilega verið átt við að fjallvegum á Austurlandi yrði lokað um miðnætti, eða …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1631

  Ýmislegt athyglisvert kom fram í fyrsta þætti Hringborðsins í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi (08.12.2014). Samtalið komst þó ekki almennilega í gang fyrr en þátturinn var um það bil hálfnaður. Of löng inngangsræða átti kannski einhvern þátt í því. Svo er það þannig að þegar tveir, eða jafnvel þrír, tala hver ofan í annan, þá heyrum …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1630

  Úr frétt á mbl.is (05.12.2014): Húsið hef­ur tekið gagn­ger­um end­ur­bót­um og gistu fyrstu gest­ir Apó­tek hót­els þar síðustu nótt. Hér hefði að mati Molaskrifara farið betur á því að tala um að gagngerar eða gagngerðar endurbætur hafi verið gerðar á húsinu. Eða að húsið hafi tekið algjörum stakkaskiptum.  Ekki að það hafi tekið endurbótum. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1629

Eins og sjálfsagt þorri þjóðarinnar horfði Molaskrifari bergnuminn á Kastljós gærkvöldsins (04.12.2014) þar sem teymi snillinga með Tómas Guðbjartsson skurðlækni í fararbroddi vann afrek á heimsmælikvarða. Þetta var eiginlega ótrúlegara en orð fá lýst. Þau sem þetta afrekuðu mega vera stolt og við stolt af því að eiga þau að. Þetta fólk megum við ekki …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1628

  Molaskrifara heyrðist málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins segja í Morgunútgáfunni (02.11.2014) að hún væri ekki á móti slettum! Málfarsráðunautur kann væntanlega skil á málstefnu Ríkisútvarpsins. Þar segir: ,,Ríkisútvarpið skal samkvæmt lögum leggja rækt við íslenska tungu og menningu og hefur mikilvægu fræðslu- og uppeldishlutverki að gegna á þessu sviði. Allt málfar í Ríkisútvarpinu á að vera til …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1627

  Gamall skólabróðir og vinur, Sigurður Oddgeirsson, skrifaði frá Danmörku (01.12.2014): ,,Jón Steinar talar um hnífgradda í grein sinni á Eyjunni í dag. Ég hef aldrei heyrt þetta orð, en hef engin tök á því að staðhæfa að það sé ekki til í málinu. Graddi er auðvitað til í málinu, en það er þessi samsetning, …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1626

  Fyrirsögn af mbl.is á föstudag (28.11.2014) ,Fljótsdalshérað hafði betur gegn Ölfuss”. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/11/28/fljotsdalsherad_hafdi_betur_gegn_olfuss/ Hafði betur gegn Ölfusi, hefði þetta átt að vera. En þegar sagt er sigraði lið Ölfuss þá er það rétt. Ef fréttaskrifarar eru í vafa um beygingar orða er einfalt og fljótlegt að styðjast við hinn ágæta vef Árnastofnunar, beygingarlýsingu íslensks nútímamáls. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla1625

Í Spegli Ríkisútvarpsins (27.11.2014) þar sem fjallað var um vopnabúnað lögreglunnar hér á landi vitnaði fréttamaður í yfirlögregluþjón hjá ríkislögreglustjóra og sagði: Jón segir að vopnin verði ekki neydd upp á þá að svo stöddu. Ekki kann Molaskrifari allskostar vel við þetta orðalag. Hefði ekki verið eðlilegra að segja að þeir yrðu ekki neyddir til …

Lesa meira »

» Newer posts