Undarleg fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins (22.01.2015): Leikskólastjórar fá vitlausan lífeyri http://www.ruv.is/frett/leikskolastjorar-fa-vitlausan-lifeyri Þarna hefði einhver þurft að lesa yfir og lagfæra. Í fréttinni er réttilega talað um rangar lífeyrisgreiðslur. Ekki vitlausar! Góður húmor hjá Hauki Holm fréttamanni. Í þrjú fréttum Ríkisútvarps (22.01.2015) sagði hann frá uppákomu á Alþingi. Við heyrðum í tveimur þingmönnum, sem báðir …