NÝIR VENDIR … Auglýsingar Hamborgarabúllu Tómasar eru oft frumlegar og skemmtilegar. Rétt eins og auglýsingarnar frá Kaupfélagi Borgfirðinga. Koma stundum þægilega á óvart. Nýlega (13.01.2017) mátti heyra svohljóðandi auglýsingu í Ríkisútvarpinu frá Hamborgarabúllu Tómasar: Nýir kústar sópa best. Ekki kann Molaskrifari fyllilega að meta þetta. Er ekki hinn gamli orðskviður eða málsháttur enn í …
Molar um málfar og miðla 2092
,,EKKI FRÉTT“ Stundum er talað um ,,ekki fréttir“, þegar skrifað er um eitthvað sem ekki er nýtt , ekki breyting, ekki í frásögur færandi. Þannig ,, ekki frétt“ var á fréttavef Ríkisútvarpsins (12.01.2017). Fyrirsögnin var: Utanríkisráðherra mótfallinn aðild að ESB. Það er ekki nýtt. Það er ekki frétt. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem nú er orðinn …
Molar um málfar og miðla 2091
MAT Fréttamat er auðvitað umdeilanlegt. Skrifara fannst það skrítin forgangsröðun hjá umsjónarmanni Kastljóss (11.01.2016), þegar rætt var við formenn stjórnarflokkanna að byrja á því að ræða um ESB-mál. Hversvegna? Vegna þess að ESB hefur lýst því yfir, að engin ný ríki geti öðlast aðild á næstu árum. Það sé ekki á dagskrá. Í öðru lagi …
Molar um málfar og miðla 2090
SLYS OG SKÝRSLA Enn eitt banaslysið varð í sandfjöru við suðurströndina í gær , þegar úthafsalda hreif fjölskyldu, hjón og tvo unglinga með sér. Unglingarnir og faðirinn björguðust en konan drukknaði. Í fréttum Ríkissjónvarps (09.01.2017))var sagt, – sjúkrabílar fluttu afganginn af fjölskyldunni til Reykjavíkur. Ekki mjög vel orðað. Í frétt um þetta hörmulega slys á …
Molar um málfar og miða 2089
MEINLOKAN MARGTUGGNA Sagt var í íþróttafréttum Ríkissjónvarps (05.01.2017): Í seinni leik kvöldsins mættust gestgjafar Danmerkur …. Þarna var verið að tala um dönsku gestgjafana, sem héldu mótið, – ekki einhverja sem voru gestjafar Dana, buðu Dönum. Þetta er einkennileg meinloka og undarlegt, að íþróttafréttamenn skuli ekki vita hvernig á að nota orðið gestgjafi. Í sama …
Molar um málfar og miðla 2088
ELDINGAR Þegar fjöldi eldinga sló niður var sagt í næturfréttum Ríkisútvarps (05.01.2017). Eldingarnar slógu ekki niður. Eldingum sló niður. Þegar fjölda eldinga sló niður. Enginn las yfir. KYNNING Á LÍKAMSRÆKT Í Kastljósi Ríkissjónvarps (04.01.2017) var fjallað um líkamsræktarstöðvar. Þar var talað um þjálfun í líkamsræktarstöðvum, sem er hreint ekki ókeypis. Þar var hins …
Molar um málfar og miðla 2087
FYRIR RANNSÓKN MÁLS Það virðist vera staðlað orðalag í dagbókarfærslum lögreglunnar að tala um að maður/menn séu vistaðir í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Úr frétt á mbl.is (04.01.2016) Samkvæmt upplýsingum úr dagbók lögreglunnar voru mennirnir í annarlegu ástandi og eru vistaðir í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn máls. Þetta er óeðlilegt orðalag. Mennirnir voru vistaðir í …
Molar um málfar og miðla 2086
LANGLOKA OG ENDURTEKNINGAR Geir Magnússon, sem er búsettur erlendis, fylgist vel með íslenskum fjölmiðlum. Hann skrifar Molum af og til en hefur stundum samband beint við fréttamenn, þegar honum þykir eitthvað athugavert við texta og bendir á hvað betur mætti fara. Því er misjafnlega tekið, að hans sögn. Geir benti Molaskrifara á þessa frétt eða …
Molar um málfar og miðla 2085
EINFÖLD SAMLAGNING Rafn skrifaði á nýársdag: ,, Sæll Eiður Það er ekki aðeins málþekking fréttabarna, sem virðist vera fyrir neðan alla hellur. Kunnátta í reikningi og stærðfræði virðist vera á svipuðu stigi. Í minni skólatíð var kennt, að 1+11+1 gæfi útkomuna 13. Í frétt mbl.is hér fyrir neðan verða ein fyrrverandi eiginkona, 11 ættingjar hennar og einn …
Molar um málfar og miðla 2084
ÓGLÆSILEG BYRJUN Á NÝJU ÁRI Svona skrifar Sigurjón Molum á nýársdag: ,,Heill og sæll Eiður og gleðilegt nýtt ár. Ekki byrjar nýja árið glæsilega hjá fjölmiðlum. Snemma á nýársmorgun blasti þessi fyrirsögn við mér á Mbl.is „Fólkið sem fór á ferlegu ári“. Hér var verið að fjalla um andlát þekktra aðila á nýliðnu ári. Hér …