fréttum RÚV kl 18 00 (14.05.2010) var sagt: ….í kjölfar beiðnar… Eignarfallið af beiðni er beiðni. Þess vegna hefði fréttamaður átt að segja: …. í kjölfar beiðni… Úr mbl.is (15.05.2010): Nokkur hundruð þúsund manns í Kína hefur þurft að glíma við afleiðingar flóða í suðurhluta landsins. Þetta er ekki rétt. Rétt væri að segja: …


