Úr dv.is (18.05.2010): Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að ræða sem hann flutti á Alþingi í dag hafi verið snúið á hvolf af fjölmiðlum. Þetta er ömurlegt orðalag. Betra væri: Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir fjölmiðla hafa snúið ræðu sem hann flutti á Alþingi á hvolf. Í fréttum Stöðvar tvö (18.05.2010) af hollenska bátnum á …


