Þingmaður Sjálfstæðisflokks líst illa á stöðuna, sagði fréttaþulur í upphafi fréttatíma RÚV klukkan 18 00 (16.05.2010). Nokkuð skortir á máltilfinningu þeirra,sem svo taka til orða. Það væri til bóta í dagskrárkynningu Ríkissjónvarpsins í blöðum, að þess væri getið hvort ráðgert er að endursýna þætti, eða þáttaraðir, og þá hvenær. Aldrei kann Molaskrifari við það, þegar …


