Ekki heyrði Molaskrifari betur en í veðurfregnum að morgni dags (22.05.2010) væri talað um norðnorðaustan logn í Reykjavík! Það er mikil blíða. En kannski var Molaskrifari bara milli svefns og vöku og heyrði eitthvað,sem aðrir ekki heyrðu! Molaskrifara misheyrðist ekki. Sama orðalag var notað, tvívegis, í veðurfréttum að morgni Hvítasunnudags (23.05.2010). Þá var talað um …


