Sjónvarp og útvarp eru áhrifamiklir miðlar. Það var vægast sagt óheppilegt hvernig Ríkisútvarpið flutti okkur frétt um rannsóknir á erfðabreyttum matvælum á föstudaginn (21.09.2012) Nánast var sagt berum orðum að erfðabreyttur maís væri krabbameinsvaldur. Komið hafa fram öflug andmæli frá vísindamönnum víðsvegar í veröldinni gegn tímaritsgreininni og rannsókninni sem frétt Ríkisútvarpsins byggðist á , einnig …