Fréttatímar sjónvarpsstöðvanna á mánudagskvöldið (23.05.2011) voru ólíkir. Báðir góðir, hvor með sínum hætti. Ríkissjónvarpið sá þó til þess að fótbolti og formúla fengju rúman tíma, – Þar breytti engu þótt tæpur klukkutími af dagskránni seinna um kvöldið væri líka lagður undir fótbolta. Hjá ríkinu hefur fótboltinn alltaf forgang. Hvað eftir annað hefur Molaskrifari að …
Molar um málfar og miðla 611
Báðar gerðu sjónvarpsstöðvarnar Grímsvatnagosi góð skil í fréttatímum á sunnudagskvöld (22.05.2011) og verður þar ekki gert upp á milli. Í Ríkissjónvarpinu stóð Landinn að venju fyrir sínu og svo fylgdi ágæt mynd Eggerts Gunnarssonar um flutning sinfóníunnar úr Háskólabíói í Hörpu. Á stundum er fréttamat Fréttastofu Ríkisútvarpsins svo einkennilegt, að undrun sætir og gamlir fréttamenn …
Molar um málfar og miðla 610
Eftir því sem við var að búast voru Grímsvatnagosi gerð ágæt skil í tíufréttum Ríkisútvarps og aukafréttatíma Ríkissjónvarps (21.05.2011).Sömuleiðis í morgunfréttum klukkan 0700 daginn eftir. Vefur Ríkisútvarpsins og mbl.is gerðu málinu einnig mjög góð skil snemma á sunnudagsmorgni. Þá var og mjög vel að verki staðið í löngum fréttatíma á Rás eitt milli klukkan átta …
Molar um málfar og miðla 609
Magnað og áhrifamikið Kastljós (20.05.2011). Vel gert, Sigmar og Jóhannes. Vonandi hefur margt ungt fólk verið í hópi áhorfenda. Þennan þátt mætti gjarnan endursýna nokkrum sinnum. Úr mbl.is (17.05.2011): Maður sem var að reyna að bjarga hundi sínum lifði af um 60 metra fall niður klett í norðausturhluta Bretlands. Undarlegt orðalag að tala um fall …
Molar um málfar og miðla 608
Helga Árnadóttir sendi Molum eftirfarandi línur: ,,Heill og sæll ágæti molaskrifari. Þakka þér fyrir þínar góðu og mjög svo þörfu athugasemdir við málfar landans. Hrökk í kút, er ég nú fyrir stundu hlustaði á, að gestum á sveitabæ var boðið upp á brodd!!!! Sem konu alinni upp á sveitabæ, blöskraði mér að heyra bóndakonuna útskýra …
Molar um málfar og miðla 607
Í frétt í Morgunblaðinu (14.05.2011) segir: … Umferð um veginn að Fimmvörðuhálsi hefur verið lokuð frá því fyrir páska. Umferð hefur ekki verið lokuð, heldur hefur vegurinn verið lokaður allri umferð frá því fyrir páska. Í sömu stuttu fréttinni segir: Úthlutað var sex milljónum króna úr styrkvegasjóði í nýtt vegstæði… Styrkvegasjóður? Það er eitthvað …
Molar um málfar og miðla 606
Það var ágætt að heyra orðið formælandi notað um talsmann Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í fréttum Ríkisútvarps (15.05.2011). Orðið talsmaður er annars algengt og ágætt. Þeir sem telja að konur séu ekki menn hafa búið til orðið talskona. Samkvæmt íslenskri málvenju fornri eru konur menn. Heilsaði Evrópu með náttúrulegum geislabug, segir á svokölluðu Smartlandi Mörtu Maríu á mbl.is …
Molar um málfar og miðla 605
Úr sófanum heima fylgdist Molaskrifari með opnunarhátíð Hörpu í beinni útsendingu frá upphafi til enda. Það var í senn stórkostleg og ógleymanleg upplifun, þótt ekki höfðaði allt, sem þar var flutt, til tónlistarsmekks skrifara, – enda enginn vegur að gera kröfu um slíkt. Allt var gott og margt frábært. Helst hefði mátt missa sín hálfgert …
Molar um málfar og miðla 604
Glöggur lesandi sendi Molum þessa ábendingu: Á baksíðu Morgunblaðsins í dag (13.05.2011) er að finna fyrirsögnina „Öll hundrað hjólin seldust upp í fyrra“. Er ekki orðinu „upp“ ofaukið hér? Hefði e.t.v. getað farið svo að 99 hjól „seldust upp“, en að eitt hjólanna hefði ekki „selst upp“? Þakka ábendinguna. Rétt. Annaðhvort: Hjólin seldust upp. Eða: …
Molar um málfar og miðla 603
Bjarni Sigtryggsson hugsar oft til Mola um málfar og miðla. Hann sendi eftirfarandi:“Persónulegar upplýsingar Facebook-notenda gætu hafa verið lekið út til þriðja aðila…“ Svona hefst frétt á dv.is í dag (11.05.2011) og lýkur á þessari stórfurðulegu málsgrein:“Facebook hafa núna séð til þess að gallinn sé ekki lengur fyrir hendi en samkvæmt talsmanni Facebook eru engar …