Það er heldur dapurlegt, að fyrrverandi þingforseti, Sturla Böðvarsson, skuli (ásamt öfgabloggaranum Jóni Vali Jenssyni) misnota nafn Jóns Sigurðssonar með þeim hætti, sem hann gerði í ræðu sinni á Hrafnseyri. Jón Sigurðsson var víðsýnn maður, sem meðal annars háði „harðar rimmur um verslunarmál landsins“, eins og Páll E. Ólason kemst að orði. Hvernig í ósköpunum …
Molar um málfar LXXXVIII
Í morgunfréttum RÚV (13.06.09.) var talað um munna Adenflóa. Venjan er að tala um mynni flóa eða fjarðar,fjarðarkjaft eins er talað um ármynni. Munni er hinsvegar notað um op eða inngang að helli. Hellismunni. Þegar sjónvarpað var frá hátíðahöldunum á Austurvelli að morgni þjóðhátíðardagsins sást hvar kínverski sendiherrann á Íslandi sat í hópi erlendra sendimanna. …
Framsóknarbloggarar fara hamförum
Framsóknarbloggarar far nú hamförum á blogginu og freista þess að bera í bærifláka fyrir formann sinn, sem gerði sig eftirlminnilega að fífli í ræðustóli Alþingis í dag. Það er ekki hægt að afsaka eða réttlæta framferði formannsins,sem alþjóð hefur nú séð oftar en einu sinni í sjónvarpi. Það er auðvelt að skilja að venjulega …
Hvað kemur næst frá Framsókn?
Þeir sem fylgjast með sjónvarpsútsendingum frá Alþingi eru orðnir ýmsu vanir frá þingmönnum Framsóknarflokksins. Við höfum fengið að heyra blótsyrði og tal um blauta drauma ríkisstjórnarinnar, svo smekklegt sem slíkt orðbragð nú er. Í gær heyrðum við formann Framsóknarflokksins garga á þingheim úr ræðustóli þingsins. Það jaðraði við að hann væri ær.Hann gargaði raunar á okkur líka …
Molar um málfar LXXXVII
Í tíufréttum RÚV sjónvarps (11.06.09.) var greint frá því hve margir þingmenn hefðu opinberað fjárhjagsleg hagsmunatengsl sín. Þetta reyndust vera samtals 27 þíngmenn. Þrisvar sinnum sagði fréttaþulur, að þetta væri langt innan við helmingur þingmanna. Á Alþingi Íslendinga sitja 63 þíngmenn. Það væri því nær lagi að segja innan við helmingur, eða nær helmingur vegna …
Framsókn finnur leið í fjölmiðla
Formaður Framsóknarflokksins hefur fundið leið til að koma sér í fréttirnar. Vera nógu stórorður, taka nógu stórt upp í sig, ryðja úr sér verðbólgnum orðum. Segir þjóðina komast á vonarvöl verði samið um Icesave. Sá ágæti maður mætti hafa hugfast að þær raunir sem íslenska þjóðin hefur ratað í má ekki síst rekja til …
Molar um málfar LXXXVI
Velkomin um borð í varðskipið Óðinn, segir í heilsíðuauglýsingu (10.06.09.) í Morgunblaðinu. Þarna ætti að standa Velkomin um borð í varðskipið Óðin. Ef varðskipið héti Jökull, væri auðvitað sagt velkomin um borð í Jökul, ekki Jökull. Óðinn beygist: Óðinn, Óðin, Óðni, Óðins. Mér hnykkti við, þegar útvarpsstjóri tvílas í tíufréttum RÚV sjónvarps (09.06.09.) að verið væri …
Ríkissaksóknari dæmir sig úr leik
Með ummælum sínum um Evu Joly og þriggja mánaða töf við að koma gögnum milli embætta innan borgarmarkanna er það deginum ljósara að ríkissaksóknari hefur dæmt sig úr leik. Líklega er hann er ekki bara vanhæfur, heldur óhæfur. Þetta er að verða skrípaleikur hjá honum.Hann hlýtur að biðjast lausnar eftir það sem á undan er …
Kastljósið dofnar
Oft er Kastljós RÚV sjónvarps gott. Það var hinsvegar með endemum dauft í kvöld. Lélegt. Samtal þeirra Ólínu Þorvarðardóttur alþingismanns og Ólafs Arnarsonar var bætti ekki nokkrum sköpuðum hlut við Icesave umræðuna. Það komst eiginlega aldrei af stað. Ólína var fyrst kölluð þingkona og svo alþingismaður. Vona að hún haldi sig við síðarnefnda heitið. …
Molar um málfar LXXXV
Álpaðist til að taka þátt í könnun, er ég var að leita að símanúmeri á ja.is . Hætti þátttökunni af skiljanlegum ástæðum, þegar ég kom að setningunni, versla föt eða fylgihluti. Það er nefnilega þannig með mig, að ég kaupi föt. Ég versla aldrei föt. Það verslar enginn maður föt, en til eru búðir …