Bráðskemmtilegir tónleikar Bjarna Thors í Salnum

  Stundum eru tónleikar svo skemmtilegir ,að  eftir  tvö  lög,  eða  svo,  byrjar maður að kvíða því að  þeim ljúki. Þannig  tilfinningu fékk ég á  tónleikum  Kristins Sigmundssonar og Jónasar Ingimundarsonar  að Laugalandi  austur í Holtum  fyrir  nokkrum árum. Þessa  sömu tilfinningu  fékk ég á tónleikum Bjarna Thors  Kristinssonar  og Ástríðar Öldu Sigurðardóttur , píanóleikara, …

Lesa meira »

Ólík viðbrögð Þorgerðar Katrínar og Sigmundar Davíðs

 Þau voru ólík viðbrögð forystumanna  Sjálfstæðisflokks og  Framsóknarflokks  við  stöðugleikasáttmálanum í ljósvakamiðlum í gærkveldi (25.06.09.). Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir  brást málefnalega og mennilega  við og  fagnaði þessum tímamótagjörningi, en  gerði  hóflega orðaðar athugasemdir.  Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins var hinsvegar  á öðrum nótum. Hann var eins og naut í flagi og hafði allt á hornum sér. …

Lesa meira »

Molar um málfar XCV

  Sú sem  fjallaði  byggingu  Tónlistarhússins í Kastljósi RÚV (24.06.09.)  sagði: Samkvæmt  Stefáni Hermannssyni..  Þetta er sami ósiðurinn og  þegar blaðamenn skrifa:  Samkvæmt  lögreglunni…Betur  hefði verið sagt:  Að sögn  Stefáns  Hermannssonar. Það  fór reyndar ekki á milli mála  að umsjónarmaður Kastljóssins var andvígur   framhaldi á byggingu  Tónlistarhússins. Kannski  hafa  fleiri en  Molaskrifari  saknað þess að  …

Lesa meira »

Molar um málfar XCIV

 Er Icesave sáttmálinn hænufet frá landráði ?  Svona auglýsir ÍNN  sjónvarpsstöðin (23.06.09.)  í  Ríkisútvarpinu.  Þegar sífellt er  verið að brigsla   ráðamönnum um  föðurlandssvik og  landráð  minnir það á  málflutning íslenskra  kommúnista  og Þjóðviljans á  árunum  um og upp úr  1950, þegar  forystumenn   lýðræðisflokkanna  voru  kallaðir landráðamenn og landssölumenn. Svo  er  sá  sem auglýsinguna  samdi ekki vel að …

Lesa meira »

Molar um málfar XCIII

  Sennilega er munurinn á  orðunum hurð og  dyr  að hverfa. Samkvæmt  Íslensku orðabókinni  er  hurð  fleki  til  að loka  dyrum,  en  dyr  inngangur í herbergi eða hús, oftast með umbúnaði til að hurð geti fallið fyrir. Fjölmiðlar  fjölluðu (22.06.09.)  um vitstola ökumann sem gekk berserksgang á  bíl sínum og olli miklu  tjóni.  Vefvísir  sagði að …

Lesa meira »

Hvaða dómstóla, Jón Steinar ?

  Virðulegur hæstaréttardómari segir í þessari Morgunblaðsgrein, að það sé  skylda  ráðamanna að láta dómstóla  fjalla um Iceasave- málið. Nú geta  menn haft ýmsar skoðanir á því hvort  hæstaréttardómari  eigi að blanda sér í  deilumál  af þessu  tagi með þeim hætti sem Jón Steinar Gunnlaugsson gerir. Víst tel  ég að það  þætti ekki við hæfi í grannlöndum …

Lesa meira »

Molar um málfar XCII

 Er ekki lágmarkskrafa, að þeir  sem  skrifa  fréttir kunni að beygja algengustu orð móðurmálsins ?Eftirfarandi setning  er af  Vefdv (20.06.09.): Staða Sigurðar Jónssonar, yngri bróðurs Guðmundar í byrginu, er ekki öfundsverð. Svona  til að hnykkja á þessu  þá beygist orðið bróðir: Bróðir, bróður, bróður,bróður.  Einkennilegt  finnst mér að  tala um stóra brautskráningu  eins og Ríkisútvarpið gerir (20.06.09.) …

Lesa meira »

Molar um málfar XCI

Morgunblaðið  sagði frá  hlut sem féll  af himnum ofan: Hafði hann rekist í þakskeggið og er þar nú ágætis dæld. 19.06.09.).  Það skorti bara á að  blaðið birti mynd  af þessari ágætu  dæld,sem ég  efast  raunar um að  húseigandinn sé  mjög ánægður með.  Fréttamaður á  fréttastofu RÚV  ræddi  við  starfsbróður sinn (19.06.09.), sem var staddur …

Lesa meira »

Molar um málfar XC

  Garðapósturinn, óháð bæjarblað í Garðabæ og Álftanesi, barst mér í pósti  fyrir nokkrum dögum. Þar er eftirfarandi  að  finna:  Kópavogspóstinum hafði samband fiskiprinsinn,Eyjólf Júlíus Pálsson, eiganda  fiskverslunarinnar Hafið  – Fiskiprinsinn sem staðsett er  að Hlíðarsmára 8  í Kópavogi. Hafið er sérverslun með  fiskafurðir fyrir  kröfuhafa grillneytendur  á  sanngjörnu verði. Prinsinn hvað hann hefur  spennandi …

Lesa meira »

Molar um málfar LXXXIX

  Úr Vefmogga (16.06.09.):Eitt tilvikanna átti sér stað milli Parísar og Tokyo en þá settu flugmenn vélarinnar af stað viðvörun, eftir vandamál tengt stormi. Afleiðing vandamálanna var að sjálfstýring vélanna var aftengd og önnur kerfi settu af stað viðvörun. Í öllum sex tilvikum tókst flugmönnunum að ná aftur stjórn yfir vélunum. Ekki  getur  þetta  kallast  …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts