Við vorum höfð að fíflum

 Það kemur æ betur í ljós hvernig  við höfum öll , öll þjóðin, verið höfð  að  fíflum. Svolítið einfaldað var þetta svona: Samson  fékk að kaupa Landsbanka Íslands, – banka allra  landsmanna, af því að   þeir áttu svo mikinn gjaldeyri eftir að hafa selt Heineken bjórverksmiðju í Rússlandi. Nú er komið í ljós að þeir  fengu  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CI

Þeim sem langar í styrju eða fisk.. stóð í myndatexta í Morgunblaðinu (03.07.2009) Og ég sem hélt að Mogginn væri vaxinn upp úr  svona  villum !  Heyrði  brot úr endurteknum þætti í Útvarpi Sögu (03.07.2009) þar sem  verið var að mæra og auglýsa hvalaskoðunarfyrirtæki í  Reykjavík.  Þar var skemmtileg  ambaga, eða mismæli, þegar önnur konan …

Lesa meira »

Hélt að ekkert væri eftir til að selja

 Það verður að segjast eins og er að þessi frétt kemur verulega á óvart. Ég hélt að bæjarstjórinn í Keflavík (sem ég fæ mig  aldrei til að kalla Reykjanesbæ) væri  búinn að  selja allar eigur bæjarins ,sem á annað borð væri hægt að koma í verð.  Ég á líka erfitt með að átta mig á því að ein …

Lesa meira »

Molar um málfar C

 Dæmi um stofnanastíl af vef Ríkisútvarpsins (02.07.09.): Hann segir fjölda ferðamanna hafa stigmagnast jafnt og þétt í sumar. Átt er við að  ferðamönnum hafi  fjölgað jafnt og þétt í allt sumar ! Fjöldi ferðmanna stigmagnast!. Þetta er einstakt orðalag. Litlu betra er það sem lesa má í frásögn Vefvísis af Alþingi (02.07.09.): Bjarni sagði ræðu Össurar …

Lesa meira »

Molar um málfar XCIX

 Morgunblaðinu verður  tíðrætt um það á  forsíðu (30.06.09.) að komu nýrra gæsluflugvélar  til landsins seinki vegna  pappírsvinnu í tengslum  við  tryggingar og  fleira.   Orðið pappírsvinna  er  aulaþýðing á  enska  orðinu paperwork. Á íslensku heitir þetta skriffinnska. Vefmoggi  segir í fyrirsögn (30.06.09.): Keyrt á reiðhjólamann. Fyrirsagnarhöfundur  hefur líklega ekki þekkt orðið hjólreiðamaður,sem þó er  notað í …

Lesa meira »

Molar um málfar XCVIII

 Hvernig ætlum  við að  afla  fé, sagði samgönguráðherra í sjónvarpi ríkisins (29.06.09.), Við öflum fjár en útvegum  fé.  Þeir  sem  voru  klukkutíma að  aka  frá Selfossi  til Hveragerðis milli klukkan  þrjú á  fjögur  sunnudaginn 28.  júní munu líklega aldrei skilja  þá  arfavitlausu hugmynd ráðherrans að Vaðlaheiðargöng eigi  að koma á undan tvöföldun Suðurlandsvegar. Vegurinn milli Selfoss og  …

Lesa meira »

Framíköllin á Alþingi

 Framíköll  hafa  lengi tíðkast á  Alþingi. Fram undir þetta hafa þau  takmarkast  við hnyttin innskot, sem kannski  hafa slegið ræðumann svolítið út  af laginu en vakið kátínu í þingsalnum. Nú eru   hinsvegar  svo komið  að  stjórnarliðar   fá ekki  lengur  hljóð í  ræðustóli  fyrir  taugaveiklunarframíköllum þingmanna  Framsóknarflokks  og  Sjálfstæðisflokks. Þetta er  auðvitað  virðingarleysi   fyrir  skoðunum annarra,  …

Lesa meira »

Ég tek ofan fyrir …

 … Steingrími J. Sigfússyni. Hef  sjaldnast verið sammála honum í pólitík, en eftir hrunið í haust hefur  Steingrímur komið fram sem traustur og kjarkmikill stjórnmálamaður. Ég minnist  heimsóknar hans  til Færeyja rétt í kjölfar hrunsins. Þá   flutti hann ræðu    yfir  færeyskum þingmönnum. Þar  talaði Íslendingur en ekki VG pólitíkus. Það var góð ræða.  Einn  eða  …

Lesa meira »

Molar um málfar XCVII

Aftur og aftur eru það  sömu orðin, sem verða fréttaskrifurum að fótakefli. Í fyrirsögn í vefmogga sagði (27.06.09.): Vilja  forða  slysi við lagasetningu.  Sögnin  að  forða  þýðir  að  bjarga  eða  koma undan. Fram ,fram fylking, forðum okkur háska frá.  Það er ekkert  til sem heitir að  forða  slysi.  Það er  hinsvegar stundum mögulegt að gera …

Lesa meira »

Molar um mál XCVI

  Aðilabullið  er  endalaust. Allir  eru aðilar.   Nýjasta  dæmið  sem  Molaskrifari hefur hnotið um  er   í  stórri  auglýsingu (25.06.09.) í Fréttablaðinu. Þar segir stórum stöfum: Aðstoðaraðili  óskast í eldhús  leikskólans Hamravalla. Aðstoðaraðili, heyr á  endemi !  Af hverju er  ekki  auglýst  eftir   aðstoðarmanni? Eða aðstoðarmanni/konu fyrir þá sem  vita ekki að konur eru  menn. Molaskrifari er …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts