Molar um málfar og miðla CVI

 Úr Vefvísi (12.07.2009) : Mennirnir komu heilir höldnu niður. Hér notar  skrifari orðatiltæki, sem hann kann ekki með að  fara. Rétt hefði verið að  segja: Mennirnir komust heilu og höldnu niður, það er  án óhappa. Í DV (14.07.2009) er frétt um mann sem  dæmdur var fyrir kynferðisbrot  gegn 14 ára stúlku.  Fréttinni fylgir mynd  af …

Lesa meira »

Léttvæg gífuryrði

 Gífuryrði Þórs Saarisverða ákaflega léttvæg þegar  hann  segist  tvityngdur og kunna ensku til hlítar  en  hefur aldrei heyrt orðið  subrogate. Þeir  lögfræðingar íslenskir sem ekki þekkja  það orð  eru  heldur illa að sér í ensku lagamáli. Það  þarf ekki að leita  dauðaleit í orðabókum til að komast að merkingu þessa tiltölulega algenga orðs í lagaensku. Nafnorðið  …

Lesa meira »

Þeir eiga að biðja þjóðina afsökunar

 Þingmenn  Sjálfstæðisflokksins  koma nú í ræðustól á Alþingi í hverri  viku og  heimta afsökunarbeiðnir frá þingmönnum úr  stjórnarflokkunum vegna einhvers sem  skiptir  afa rlitlu máli í því ógnarásatandi sem nú ríkir.    Hvernig  væri nú að Sjálfstæðisflokkurinn bæði íslensku þjóðina afsökunar  á því  hvernig  staðið var að einkavæðingu  ríkisbankanna á sínum tíma. Framsóknarflokkurinn mætti  gjarnan  standa …

Lesa meira »

Bull

 Þessi  endemis  ræða míns ágæta kunningja, er bara bull og meira bull. Hvernig í ósköpunum á  þjóðin að bera virðingu  fyrir  löggjafarsamkomunni, þegar þar  er talað með þessum hætti ? Sá sem  svona talar veit  ekkert um   gömlu Sovétríkin og enn minna um  Evrópusambandið.  Eigum ekkert erindi í hið nýja Sovét

Molar um málfar og miðla CV

 Það er einkar vafasöm fagmennska hjá Ríkisútvarpinu, þegar það er fyrsta frétt (11.07.2009) í hádegisútvarpi, að  þingmaður  Sjálfstæðisflokks segi kostnaðaráætlun (990 milljónir á þremur árum) vegna aðildarumsóknar að ESB  sé brellupólitík og blekkingar, marklaust plagg. Þetta hefði  verið frétt, ef þingmaðurinn hefði  stutt  fullyrðingu sína  rökum, – það gerði þingmaðurinn ekki. Þetta var venjubundinn pólitískur sleggjudómur og  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CIV

 Beyingakerfi tungunnar á í vök  að verjast. Um það ber vitni  fyrirsögn fréttar í Vefvísi (09.07.2009): Frá Reykjavík til Akureyri á tólf tímum. Meira af Vefvísi þar sem aðilar lifa  góðu lífi:  … en þar rétt hjá búa nokkrir aðilar af austur-evrópskum uppruna. Aftur og aftur falla fréttamenn í  sömu, gömlu pyttina. Í hádegisfréttum RÚV …

Lesa meira »

Hið hyldjúpa spillingarfen

 Með hverjum deginum kemur  betur og betur  í ljós hið hyldjúpa, eða öllu heldur botnlausa, spillingarfen í kring um  einkavæðingu  ríkisbankanna. Tveir stjórnmálaflokkar bera höfuðábyrgðina á þessu  og þar með  hvernig  komið  er fyrir okkur, þegar  búið er að  setja  heilt samfélag á hliðina. Þessir sömu tveir  stjórnmálaflokkar, Sjálfstæðisflokkur og  Framsóknarflokkur, að  vísu með  nýja  foringja,   …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CIII

 Molahöfundur  gerðist  svo  djarfur   að senda fréttastofu Ríkisútvarpsins   vinsamlega ábendingu  um framburð á  nafni borgarinnar Urumqi í vestur Kína  eða  gamla  Austur Túrkestan sem  mjög er í fréttum þessa dagana.  Það hafði  ekki áhrif því í fréttum (08.07.2009) kallaði fréttaþulur (útvarpsstjóri) borgina Úrúmkí, sem  er rangt. Ekki þarf  annað en að  fletta upp í Merriam-Webster Online Dictionary  á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CII

  Sjónvarpsfréttir  RÚV ( 07.07.2009)  og Þóra Arnórsdóttir  í Kastljósi fá  prik  fyrir umfjöllun um Sjóvá-Milestone -Askar  svindlið. Varpað var ljósi á  málið og þetta skýrt á mannamáli. Vilhjálmur Bjarnason hitti naglann á  höfðuðið í lokin, – eins og hann hefur  svo oft gert.  Fáránlegt er hinsvegar  að Kastljós  skuli fara í  sumarfrí , þegar Alþingi  er að …

Lesa meira »

Sífelldur skollaleikur

Stjórnarandstöðuflokkar á Íslandi hegða sér á  annan veg en  stjórnarandstaðan gerir á  Norðurlöndunum.  Hjá Sjálfstæðisflokknum  snýst þetta um að  djöflast gegn öllu sem  ríkisstjórnin  gerir,  sjá hvergi neitt nema  svartnætti  og  djöfulskap,sem er  eins og   sagt var „hænufet  frá landráðum”. Stjórnarandstaðan er í sífelldum skollaleik.  Hjá  Framsókn er hinn óreyndi þingflokkur mest í fíflagangi, vill …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts