Molar um málfar og miðla XCIII

 Það var svartur fréttatími  í  Ríkissjónvarpinu í kvöld. Þar rak hver fréttin  aðra  um atferli  bankabófanna, sem  forðuðu fjármunum sínum í skattaskjól víðsvegar um veröldina, þegar þeir sáu  afleiðingar afreka sinna  kristallast í yfirvofandi hruni bankanna. Svo  situr þjóðin í   skuldasúpunni  sem  þessir  20-30 menn hafa  soðið okkur.  Og allir ganga þeir lausir, — ennþá. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXII

 Í yfirliti hádegisfréttatíma  RÚV (25.07.2009) var sagt  frá   því að eldur hefði kviknað í þaki íþróttahúss fatlaðra við Hátún. Sagt var að slökkviliðið hefði náð góðum tökum á  eldinum. Þetta finnst mér  einkennilegt orðalag. Góðum tökum?  Líklega var átt við að slökkviliðsmenn hefðu náð tökum á  eldinum. Þetta orðalag var  ekki notað í sjálfri fréttinni. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXI

Úr Morgunblaðinu (25.07.2009) um vvopnaðan mann sem  gekk  berserksgangs vestur á Barðaströnd: Vel gekk að tryggja ástandið á vettvangi og gistir maðurinn nú í fangageymslu lögreglunnar á Vestfjörðum …Vonandi hefur ástandið ekki verið tryggt hjá Sjóvá. Þetta er l   dæmigert löreglumálfar  , aulaþýðing úr  ensku. Vettvangur  er líka vinsælt  lögguorð. Vettvangur þýðir náttúrulega bara  , …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CX

Í DV (22.07.2009)  eru nokkrar  síður  helgaðar  Vestfjörðum. Þar er  greinarkorn um það er   sjóræningjar rændu sýslumanninum á Rauðasandi. Fyrirsögnin er  reyndar í  óþarfri þolmynd. Germynd er alltaf betri. En undirfyrirsögnin er undarleg:  Í  Sjóræningjahúsinu á  Patreksfirði eru rifjaðar upp viðkomur sjóræningja fyrir uppátæki þeirra.  Þessi  setning er mér  gjörsamlega  óskiljanleg.  Í henni er ekki …

Lesa meira »

Ég skal kýla þig á …..

   Það er of algengt að  heilbrigt fólk,sem  nennir ekki að ganga  fáeina metra  leggi í bílastæði sem  eru sérmerkt  fötluðum og  eru  nálægt inngangi ýmissa verslana og  fyrirtækja.  Þessi  stæði eru rækilega merkt  og  þarf enginn að velkjast í vafa um  hverjum þau eru ætluð. Þeir sem mega nota þessi  stæði  eru með  sérstakt  spjald  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CIX

 Í tíu fréttum RÚV  sjónvarps (21.07.2009)  var sagt: Davíð Bragi Konráðsson fornleifafræðingur  brá í brún þegar… Betur hefði  fréttamaður sagt: Davíð Braga Konráðssyni fornleifafræðingi  brá í  brún þegar..  Í sama fréttatíma  var sagt að Icesave málið væri  þungt á  fæti. Rugl. Kannski mætti   segja málið  þungt í vöfum, eða bara erfitt viðfangs.  Af Vefdv (21.07.2009): ..þar …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CVIII

Af Vefvísi (20.07.2009):  Hestakerra sem var í eftirdragi pallbifreiðar valt á hliðina í Hveradalabrekku á sunnudagskvöldinu en í kerrunni voru þrír hestar.Samkvæmt lögreglunni á Selfossi sluppu hestarnir ómeiddir. Vitni sagði að kerran hefði farið að rása að aftan í dráttarbifreiðinni og það varð til þess að hún valt. Einstaklega  lipurlega og  fagmannlega skrifað,   ekki satt …

Lesa meira »

Að æra óstöðugan

Að telja upp allar ambögurnar í þessari frétt mundi líklega æra óstöðugan.  Hvernig á að vera  hægt að taka mark á  fjölmiði  þar sem  slíkir  bögubósar  böðlast   óbeislaðir um ritvöllinn og misþyrma tungunni ? Heimilar landnemabyggðir

Molar um málfar og miðla CVII

Úr Vefdv (18.07.2009): …og er með 24 áhafnarmeðlimi um borð. Fréttin er um sómalska  sjóræningja,sem  rænt hafa  flutningaskipi.  Lífseig ambaga áhafnarmeðlimir. Af hverju ekki : Um borð  eru  24 skipverjar  , eða ,á  skipinu er 24 manna áhöfn? Í kynningu á  efni þáttarins Íslands í  dag var í liðinni viku á   Stöð  tvö  sagt : hljómsveitin …

Lesa meira »

Pólitískt hugrekki

John F. Kennedy , seinna  forseti  Bandaríkjanna,   skrifaði fræga bók, Profiles in Courage.Hún fjallaði um pólitískt  hugrekki og heiðarleika. Mesta  pólitíska hugleysi sem hugast getur  er að  sitja hjá, – þora ekki að taka afstöðu í  erfiðum málum. Þetta sáum við á  Alþingi í dag.  Þráinn Bertelsson og  Ragnheiður Rikharðsdóttir eiga mikinn heiður skilinn. Ég …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts