Í hádegisfréttum Rúv (08.08.2009) var sagt frá ólátum við lögreglustöðina í Reykjavík. Þá sagði fréttamaður: Að sögn lögreglu á mótmælandi að hafa sparkað í höfuð lögregluþjóns. Hversvegna þetta orðalag ? Sagði lögreglan ekki að mótmælandi hefði sparkað í höfuð lögreglumanns' ?Hér er fréttastofa RÚV að draga taum mótmælenda og draga frásögn lögreglunnar í efa .Mótmælendur hafna frásögn lögreglunnar.Það …
Molar um málfar og miðla CXIX
Í fréttum RÚV klukkan 0500 og aftur klukkan 0600 (08.08.2009) var sagt frá ungabarni sem talið hafði verið látið og átti að fara að kistuleggja. Barnið hafði vegið 500 grömm við fæðingu. Íslensk málvenja er að tala um merkur, þegar talað er um þyngd nýfæddra barna en líklega vita fæstir að ein mörk er 250 grömm …
Molar um málfar og miðla CXVIII
Jóhanna Kristjánsdóttir, mín gamla vinkona og skólasystir, kvartar yfir því á fésbókinni að lítt sé skrifað um málfar í fjölmiðlum. Hér hafa verið birtir 118 pistlar ,- langflestir um ambögur og hortitti. En vissulega hefur einnig verið vikið að ýmsu öðru. Pistlarnir gætu verið fleiri,- það er nógu að taka. Í fréttum Stöðvar tvö …
Ökuníðingur
Sá sem ekur stórum jeppa með stórt hjólhýsi í eftirdragi fram úr 10-12 manna fólksflutninga bíl með kerru í eftirdragi heitir á íslensku ökuníðingur. Þetta gerir enginn heilvita maður. Svo var forsjóninni fyrir að þakka að enginn hlaut bana af. Það var ekki ökuníðingnum að þakka. Skelfilegt.Vonandi hlýtur hann verðskuldaða refsingu. Jeppi eyðilagðist og hjólhýsi splundraðist
Molar um málfar og miðla CXVII
Í fréttum RÚV hljóðvarps klukkan 1800 (04.08.2009) var sagt: Lögbann á fréttaflutning Ríkisútvarpsins var formlega aflétt í dag. Fréttin var um málefni Kaupþings. Hér átti auðvitað að segja: Lögbanni á fréttaflutning Rúv var formlega aflétt. Svo maður vitni í frægar bókmenntir , sagði ekki Sherlock Holmes: Elementary, my dear Watson? Einfalt mál minn kæri Watson. …
Molar um málfar og miðla CXV!
Áhugamenn um vandað mál senda Molaskrifara stundum pistla. Slíkur pistill barst mér á dögunum frá Jóhannesi Tómassyni fyrrverandi blaðamanni. Allar eru ábendingar hans góðar og eiga fullan rétt á sér. Með hans leyfi birti ég pistilinn í heild: Ágæti Eiður. Af því að ég er í sömu stöðu og þú sem fyrrverandi blaðamaður fylgist ég …
Molar um málfar og miðla CXV
Furðulegur ljósflötur á Venus veldur usla , er skrifaðað á (Vefvísi 02.08.2009). Usli er tjón ,eða óskundi. Hvaða tjóni veldur þessu óskundi? Svo er eignarfallið af Venus auðvitað Venusi. Það er afrek að koma tveimur villum í í sex orða setningu. Á eyjunni.is er skrifað.. en hann er sem stendur í sölumeðferð. Þetta er skrifað um …
Einfalt mál
Mikið er nú talað um að skerða þurfi fjárframlög til löggæslu. Þess þarf ekki. Ef lögreglan sektar alla þá sem tala í síma í akstri og gefa aldrei stefnuljós, er málum bjargað. Tekjur munu aukast umfram það sem þarf. Lögregla ætti séstaklega að fylgjast með með bílum sem kosta 6 millijónir+ og þaðan af meira. …
Molar um málfar og miðla CXIV
Engu er líkara en sumir fréttamenn vinni markvisst að því að útrýma góðum og gildum íslenskum orðtökum og taka í staðinn upp aulaþýðingar úr ensku. Í sjöfréttum (27.07.2009) RÚV sjónvarps var fjallað um Landsbankasukkið. Þar talaði fréttamaður um síðasta sumar (e. last summer) Á íslensku er sagt í fyrra sumar. Daginn áður var í fréttatíma Stöðvar …