Molar um málfar og miðla CXXVII

 Löggæsluyfirvöld eru iðin  við orðasmíð en  ekki er það   það allt af hinu  góða.. Eftirfarandi  er úr Vefvísi (14.08.2009):  Það yrði að öllum líkindum þannig, þar sem honum yrði brottvísað af Schengen-svæðinu.  Sögnina að brottvísa hef ég  aldrei heyrt. Á íslensku   er talað  um ´að vísa einhverjum á brott, ef hann er  rekinn burt. Hinsvegar …

Lesa meira »

Traust og trúnaður – Icesave lekinn

Líklega hafa  allir blaðamenn upplifað það að vera  trúað  fyrir   viðkvæmum upplýsingum,sem  ekki  væru  til birtingar. Til  dæmis   skýringum  á því hversvegna gæti  verið skaðlegt  almannahagsmunum  eða   rannsóknarhagsmunum (eins og það heitir víst núna)  á þeim tímapunkti að greina frá því sem blaðamaðurinn vissi. Ég held að langflestir hafi virt  þennan trúnað, enda máttu þeir  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXXVI

  Úr Netmogga (13.08.2009):….að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum varð ökumanninum á þau mistök að stíga á bensíngjöfina í stað bremsunnar… Ökumanninum urðu á þau mistök að stíga á bensíngjöfina  í  stað hemlanna,  eða í  stað þess að  stíga á bremsuna eða  bremsurnar.  Í  fréttum RÚV sjónvarps kl 1900 (13.08.2009)  sagði fréttamaður:  …þetta þýðir það að Icesave  …

Lesa meira »

Ystu mörk fáránleikans

  Sá sem þetta  skrifar er örugglega ekki þekktur á  blogginu sem  sérstakur aðdáandi  Þráins Bertelssonar. Tillaga  þremenninganna er hinsvegar handan við ystu mörk  fáránleikans. Þremeninngarnir  voru   tilbúnir  að  kaupslaga með sannfæringu sína í pólitískum hrossakaupum  sem líklega eiga sér  fá  fordæmi. Þráinn Bertelsson  stóð við það sem hann hafði lofað. Það er líiklega  þessvegna   …

Lesa meira »

Eitt það hrikalegasta….

 Í dag varð ég vitni að hrikalegasta framúrakstri sem ég hef  séð. Er þó búinn að hafa  bílpróf  síðan haustið  1956 og meirapróf  síðan haustið  1960.  Ég var að  koma  að  austan  á leið  til Reykjavíkur á þjóðvegi númer 1 rétt fyrir ofan  Sandskeið. Var  annar eða þriðji í   fjögurra bíla  röð  sem ók á  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXXV

 Molaskrifari heyrði ekki fréttir RÚV (12.08.2009)  klukkan 08 00, en málglöggur áhugamaður um  íslenska  tungu benti   skrifara á að hlusta á þennan fréttatíma á  netinu. Í fréttatímanum var viðtal við   forstöðumann greiningardeildar Íslandsbanka, sem    sagði að  ríkissjóður væri að afla sér fé á innlendum  fjármálamarkaði.  Þessi ambaga  er orðin ótrúlega algeng. Menn kunna ekki að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXXIV

 Snilldartexti úr Netmogga (11.08.2009): Við höfum fengið þær upplýsingar að um faraldur sé að ræða. Ég get ekki útilokað að um 50% hermannanna smitist á endanum,“ sagði hann jafnframt.  Hermennirnir hafa það verkefni að hafa eftirlit með landamærum ríkjanna, sem teygir sig yfir 196 km langt svæði. Norska ríkisútvarpið segir að hersveitin telji um 600 …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXXIII

 Einhver athyglisverðasta frétt sem ég hef lengi heyrt í sjónvarpi var í sjöfréttum RÚV (10.09.2009)  í kvöld. Þar var  fjallað um  leit að efnum í íslenskum jurtum  í ný lyf sem  hugsanlega gætu gagnast í framtíðinni í baráttu gegn  skæðum  sjúkdómum  eins og krabbameinum og  Alzheimer.  Þetta er stórmerkilegt mál og í leiðinni er rétt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXXII

 Fróðlegt og áheyrilegt var það sem  Morgunfrú Rásar eitt (10.08.2009) sagði   eftir að klukkur Útskálakirkju í Garðinum höfðu ómað að lokinni morgunbæn. Verra var að  hún skyldi segja að í dag væri tvö hundruðasti og tuttugasti og annar dagur  ársins. Tvö hundruð tuttugasti og annar hefði dugað Netmoggi (09.082009) : Þá segir hún að svo …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXXI

Það er ekki hlutverk fjölmiðla  að breyta  erlendum  staðaheitum sem löngu  eru orðin föst í málinu. Ríkisútvarpið,  og  Morgunblaðið  reyndar líka, Morgunblaðið hafa  tekið upp þann sið að kalla  Hudsonfljótið, Hudson ána. Manhattaneyja er milli Hudsonfljóts og  Austurár (East River). Enn verra var niðurlag fréttarinnar um flugslys yfir  Hudsonfljótinu þegar haft var eftir borgarstjóranum í  …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts