Ekki veit ég hve oft hefur verið vikið að því á þessari síðu hvernig Ríkisútvarpið, – þetta sem við eigum öll eins og auglýsingarnar segja,- sniðgengur lögin um bann við áfengisauglýsingum. Þau skipti eru mörg. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa nú farið fram á opinbera rannsókn á þessu framferði þjóðarútvarpsins (Fréttablaðið 28.08.2009). Því ber …
Molar um málfar og miðla CXXXIV
Nú leggur Molahöfundur til að fréttastjóri Stöðvar tvö útskýri fyrir sínu fólki muninn á kosningu og atkvæðagreiðslu. Sagt var í fréttum Stöðvar tvö (25.08.2009) þegar fjallað var um Icesave-frumvarpið: ..en gera má ráð fyrir að gengið verði til kosninga um þetta umdeilda mál á fimmtudaginn. Það verður ekki gengið til kosninga um Icesave á fimmtudaginn. Það …
Molar um málfar um og miðla CXXXIII
Enn gef ég Bjarna Sigtryggssyni áhugamanni um íslenskt mál orðið: „Ég kemst ekki hjá því að hafa á tilfinningunni að á síðustu árum eða áratugum hafi gætt vaxandi tilhneigingar í þá átt að nota óskýrt orðalag. Þessa verður einkum vart í máli stjórnmálastéttarinnar og sérfræðinga. Annars vegar sýnist mér um að ræða ensk áhrif; þegar …
Molar um málfar og miðla CXXXII
Nágrannavarsla , segja vinir mínir í Garðinum (RÚV 24.08.2009) um það fyrirkomulag er menn huga að óvenjulegum mannaferðum við hús fjarverandi nágranna. Gott og skynsamlegt, en orðið nágrannavarsla er klúður. Af hverju ekki Grannagát ? Vonandi útskýrir málsfarsráðunautur RÚV fljótlega fyrir fréttamönnum muninn á orðunum eftirmáli og eftirmál. Það liggur við að fréttamenn flaski á þessu í hverri einustu …
Molar um málfar og miðla CXXXI
Það er umghugsunarefni að háskólamenntaður bloggari , með meistarapróf , að auki ,skuli skrifa stuttan texta sem í eru eftirfarandi ambögur: Við værum bara ekki að skilja það . Við bara skiljum það ekki og tók reglulega fram fyrir Sigmar . Greip reglulega frammí fyrir Sigmari… lánveitingar hans til skyldra aðila voru alls ekki röng Lánveitingar hans til …
Vítaverður vítahringur
Það er misskilningur hjá forseta Alþingis að eitthvað sé athugavert við að þingmaður noti orðið vítavert í þingræðu. Við það er ekkert að athuga. Ekki veit ég betur en í þingskapalögum standi í 78. grein: „Ef þingmaður talar óvirðulega um forseta Íslands eða ber þingið eða ráðherra eða einhvern þingmann brigslyrðum eða víkur með …
Molar um málfar og miðla CXXX
Í athugasemd við síðustu Mola um miðla og málfar ásakar Egill mig um það sem hann kallar „útlenskuhatur“ og minnimáttarkennd gagnvart upptöku erlendra orða í íslensku. Við Egil vil ég segja þetta: Egill, Ekki ásaka mig um það sem þú kallar „útlenskuhatur“. Ég tók á sínum tíma BA próf í ensku og enskum bókmenntum og …
Molar um málfar og miðla CXXIX
Enn eitt árans outlettið bættist við í auglýsingum RÚV sjónvarps í kvöld(21.08.2009) – Húsgagnaoutlet í Húsgagnahöllinni. Mikil er orðgnótt og hugmyndaauðgi íslenskra kaupsýslumanna. Er til of mikils mælst að þeir tali íslensku við íslenska viðskiptavini ? Lagersala er fínt orð yfir það sem í Ameríku er kallað outlet. Verksmiðju(út)sala er líka ágætis orð en hvorugt …
Orðvar og kurteis kennari
Er það ekki fagnaðarefni að börn og unglingar skuli njóta fræðslu hjá svo orðvörum og kurteisum manni? Orðatillækið fokk jú á íslensku er alveg jafn gróft og dónalegt og fuck you á ensku. Algjör dónaskapur. Þar er enginn munur á. Ég held að þeir sem skrifa svona, jafnvel þótt þeim hitni í hamsi eigi ekkert erindi …
Molar um málfar og miðla CXXVIII
Eftirfarandi stendur á Vefdv ( 16.08.2009): „…og hefur í kjölfarið hótað mögulegri málsókn.“ Hér hefði nægt að segja hótað málsókn. Af vefmogga (16.08.2009): Karli Sigtryggsson, 16 ára drengur sem lögreglan á Selfossi lýsti eftir í dag er kominn í leitirnar, heill á húfi. Þetta var auðvitað ánægjuleg frétt, en betra hefði verið ef nafn piltsins hefð'i …