Af mbl.is (03.12.2012): Mette-Marit, krónprinsessa Noregs, dvaldi í tvo daga á sjúkrahúsi í Nýju-Delhi á Indlandi í haust, þar sem hún gætti að tveimur kornabörnum. Hér hefði að mati Molaskrifara verið eðlilegra að segja: … þar sem hún gætti tveggja kornabarna. Betra hefði verið að segja dvaldist en dvaldi. Sjónvarpsstjóri ÍNN, Ingvi Hrafn Jónsson varð …