Þessi setning er á forsíðu Fréttablaðsins (14.03.2014): Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja ríkisstjórnina hafa verið fíflaða. Sögnin að fífla þýðir að fleka eða tæla til kynmaka. Úr frétt í Morgunblaðinu (15.03.2014): Samtök atvinnulífsins segja framhaldsskólakennara ekki hafa tekist að útskýra launakröfur sinar fyrir almenningi með skiljanlegum hætti. Hér ætti að standa: Samtök atvinnulífsins segja framhaldsskólakennurum ekki …