Af mbl.is (16.06.2014): ,,Lögreglan á Selfossi stöðvaði för ökumanns á Skeiðavegi í gærkvöldi sem reyndist vera dauðadrukkinn undir stýri. Þess fyrir utan var hann sviptur ökuréttindum”. Þetta hefði betur mátt orða annan veg: Þess utan hafði hann verið sviptur ökuréttindum. Þar við bættist, að hann hafði verið sviptur ökuréttindum. Eða bara: Hann hafði ekki …