Málglöggur hlustandi vakti athygli Molaskrifara á því að í fréttum Ríkisútvarps (28.07.2014) hefði verið tekið svo til orða að það bætti úr sök. Molaskrifari hnaut reyndar einnig um þetta orðalag. Hér hefur fréttaskrifari, að mati Molaskrifara, ruglað saman tveimur orðatiltækjum, sem því miður gerist nokkuð oft. Talað er um að eitthvað komi ekki að sök, …
Monthly Archive: júlí 2014
Molar um málfar og miðla 1530
Síðbúnar þakkir til, Ríkissjónvarpsins fyrir að endursýna 20. júlí þátt um dr. Sigurð Nordal frá árinu 2012. Þátturinn var einstaklega vel og smekklega gerður, – eiga allir þeir sem því verki komu hrós skilið. Molaskrifari ætlaði að horfa á þáttinn í mikið auglýstri tímavél í Sjónvarpi Símans. Það var ekki hægt. Í spjaldtölvu var þátturinn …
Molar um málfar og miðla 1529
Molavin skrifaði (25.07.2014): “ Hann bragðaði á hákarli og sviði og skoðaði Hallgrímskirkju áður en hann gekk niður að sjó.“ (Vísir 25.7.14). Fréttabarnið er svo stolt af þessari þekkingu sinni á eintölu sviða, að það setur fullt nafn sitt við fréttina. Kannski er nú hægt að segja að þeir, sem kvíða því að bragða íslenzkan þorramat …
Molar um málfar og miðla 1528
Í fréttayfirliti og fyrstu frétt í hádegisfréttum Bylgjunnar á laugardag (26.07.2014) talaði fréttaþulur/fréttamaður um hæstlaunuðustu (skattgreiðendur). Hæstlaunuðu hefði dugað. Sami fréttamaður las frétt um makrílveiðar og sagði: ,,.. þegar veiðarnar ná hámæli”. Ná hámarki átt hann sjálfsagt við. Ef eitthvað kemst í hámæli, er það altalað, eitthvað sem allir vita. Fleiri hnökrar voru á lestrinum. …
Molar um málfar og miðla 1527
Molum barst eftirfarandi ágæt hugleiðing frá jt: ,,Til eða frá. Stundum má sjá og heyra í fréttum af vegamálum að vegur liggi frá A til B. Betur færi að segja að vegur liggur milli A og B. Yfirleitt er nefnilega hægt að komast í báðar áttir á vegum og götum – nema þar sem er einstefna – og …
Molar um málfar og miðla 1526
Ríkissjónvarpið okkar er greinilega komið í harða læknasápusamkeppni við Stöð tvö. Sýnir læknasápu á sömu dögum, nánast á sama tíma, – efnislega er þetta kynnt sem vinsæl þáttaröð um líf og störf skurðlækna sem berjast fyrir lífi sjúklinga sinna. Um það er ekki að deila að þetta er auðvitað mikill menningarauki. En er það …
Molar um málfar og miðla 1525
Á bls. 2 í DV (22.07-25.07.2014) segi :,, Ef hann hefði ekki farið í þessa aðgerð til að fjarlægja höfuðkúpuna þá hefði hann bara dáið.” Svo er látið líta út sem þetta sé tilvitnun í frétt, tekið úr frétt á síðunni. Svo er ekki. Fjarlægja höfuðkúpuna? Ekkert eftirlit. Ekkert aðhald. Í fréttinni er talað …
Molar um málfar og miðla 1524
Molavin skrifaði: ,,Fréttamennskan á RUV rís ekki hátt þessa dagana. Á netsíðu þess stendur nú (21.7.14): „Töluverð fækkun hefur verið meðal bandaríkjamanna sem greinast með HIV-veiruna. Hlutfall þeirra sem greindust féll úr rúmlega 24 prósentum í rúm 16%.“ Ef leitað er í heimild á bak við fréttina er átt við 16 af hverjum 100.000. Er …
Molar um málfar og miðla 1523
Glöggur lesandi vakti athygli Molaskrifara á grein sem Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra skrifaði í Fréttablaðið (14.07.2014) Greinin heitir Aukið samráð og fleiri valkostir og er hið mesta torf. Í tveimur málsgreinum, þeirri þriðju og fjórðu, sem eru samtals tólf línur í útprentun er orðið samráð notaðsjö sinnum, – átta sinnum ef talið er líka orðið …
Molar um málfar og miðla 1522
Í Molum fimmtudagsins (17.07.2014) var hér vikið að orðaklaginu ,,að draga að sér fé”. Molavin nefnir þetta einnig í bréfi til Molanna. Aldrei er góð vísa of oft kveðin. Molavin segir: „…aðstandendur þess hafa verið ákærðir fyrir að draga að sér fé…“ – svona las fréttakona RUV þetta í kvöldfréttum fimmtudagskvöld (17.7.14) og svona var …