Í kvöldfréttum Ríkisútvarps á sunnudag (29.06.2014) var sagt: Tildrög slyssins eru óljós samkvæmt lögreglu. Molaskrifara finnst það ekki gott orðalag, þegar eitthvað er sagt vera svona og svona samkvæmt lögreglu. Einhver á fréttastofunni er á sama máli, því seinna var þessu breytt og sagt, að sögn lögreglu, sem er miklu betra. Fólkið gat gengið …